Hvað myndi aðild að ESB þýða fyrir íslenskan sjávarútveg - Samtal við Hjálmar Vilhjálmsson
Hjálmar Vilhjálmsson er yfirmaður uppsjávarsviðs og aðstoðarmaður forstjóra hjá Brim, einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Áður starfaði Hjálmar í um tuttugu ár sem forstjóri eistnesku útgerðarinnar Reyktal, auk þess sem hann var talsmaður og nefndarmaður í eistneskum sjávarútvegssamtökum.
Í þættinum ræðir Hjálmar hvað aðild Íslands að ESB gæti þýtt fyrir íslenskan sjávarútveg. Til umræðu er sameiginlega sjávarútvegsstefna ESB, fiskveiðistjórnun, ákvörðunarvald við kvótaúthlutun, veiðar úr deilistofnum, Haag-ákvæðið, kvótahopp, íslenskar sérreglur um erlent eignarhald, samkeppnismál, möguleg tækifæri og ógnir aðildar fyrir sjávarútveginn, rekstrarskilyrði og hvað Ísland þyrfti að semja um í aðildarviðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.
Fleiri þættir af Veröld sem er
- EES-samningurinn: Tilurð, virkni og áskoranir í umrótinu7. ágúst 2026
- ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja11. júní 2026
- Smáríki og stóra borðið - Samtal við danskan Evrópuþingmann24. mars 2026
- „Að hafa áhrif er að tilheyra“ - Samtal við finnskan Evrópuþingmann og yfirferð á Evrópþinginu9. mars 2026
- ESB-atkvæðagreiðsla í ágúst, tollar, Íran og Epstein24. febrúar 2026
- „Ég breyttist“ - Samtal við Þórdísi Kolbrúnu um Úkraínu, NATO, ESB-aðild og óvissutímana20. febrúar 2026

