Margt hefur breyst til hins betra, en það er allskonar eftir
Í tilefni af Kvennaári 2025 hefur VR hleypt af stokkunum hlaðvarpi um stöðu kvenna á vinnumarkaði. Í þessum þætti tekur Halla Gunnarsdóttir formaður VR á móti þeim Arndísi Arnarsdóttur hjá Hagkaup, Júlíönu Einarsdóttur hjá Aðföngum og Kristínu Sævarsdóttur hjá Húsasmiðjunni. Heiti þáttarins gefur fyrirheit um innihaldið, Margt hefur breyst til hins betra en það er alls konar eftir! Til umræðu er kvennabaráttan, þriðja vaktin og þrjú b – blæðingar, barneignir og breytingaskeiðið, svo fátt eitt sé nefnt.
Fleiri þættir af VR hlaðvarpið
- H fyrir hagfræði #8 – Atvinnustefna og efnahagsmál með Gylfa Zoega7. maí 2026
- H fyrir hagfræði #7 - Hvað er þjóðarsátt?17. apríl 2026
- H fyrir hagfræði #6 - Olíukreppan og hagnaðardrifin verðbólga26. mars 2026
- H fyrir hagfræði #5 - Aðhald í ríkisrekstri13. mars 2026
- H fyrir hagfræði #4 - Hagfræði leikskólanna26. febrúar 2026
- H fyrir hagfræði #3 – Stýra stýrivextir þér?12. febrúar 2026






