Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir
Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af öðrum bókum og leikritum, enda var hann lengi vel með her skósveina sem skrifuðu fyrir hann og með honum.
Saga hans er líka svo áhugaverð, hann fæddist skömmu eftir aldamótin 1800 þegar allt var á stjórnmálalegum suðupunkti í Frakklandi eftir byltinguna; Napóleon, aftur yfir í konung, svo aftur Napóleon. Faðir Dumas barðist í byltingunni og var síðar virtur hershöfðingi í franska hernum. Hann fæddist í frönsku nýlendunni Santki Dominík í Vestur-Indíum, þar sem nú er Haítí. Faðir hans var franskur aðalsmaður, hvítur þrælahaldari en móðir hans var þræll hans, svört kona af óþekktum afrískum uppruna. Alexandre Dumas ólst upp föðurlaus og í sárafátækt hjá móður sinni og varð svo einn afkastamesti og frægasti rithöfundur Frakka fyrr og siðar. Faðirinn sem hann fékk ekki að kynnast var samt goðsögn í augum Dumas og var hann innblástur að mörgum af persónunum í bókunum. Bækur Dumas, sem sumar fara að nálgast 200 ára aldur, eru enn þá gríðarlega vinsælar og mikið þýddar og Dumas er á topplista yfir mest þýddu höfunda sögunnar. Sögurnar hafa líka orðið reglulega innblástur fyrir bíó, sjónvarp og leikhús. Ein þessara bóka, Greifinn af Monte Cristo, verður einna mest í brennidepli í dag.
Viðmælendur: Ragnhildur Helgadóttir, Sigurjón Bergþór Daðason og Guðrún Kristinsdóttir.
Fleiri þættir af Bara bækur
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026