Queer Situations, hinsegin fræði og Herbergi Giovanni
Efni þáttarins í dag er hinsegin, í brennidepli eru hinsegin bókmenntir og fræði. Splunkuný bókmenntahátíð, Queer Situations, setti svip sinn á vikuna sem leið. Á þessari stuttu hátíð var stórglæsileg dagskrá sem ég ætla að reyna að gera sem mest skil í þessum þætti og eitthvað í komandi þáttum. Hingað komu nokkur þeirra sem þykja mest spennandi rithöfundar hinsegin bókmenntasenu samtímans á vesturlöndum, t.a.m. Maggie Nelson og Ia Genberg. Höfundarnir sátu fyrir svörum, lásu upp og röbbuðu við gesti. Við mælum aðeins hitastigið á upphafi hátíðar. Og svo verður líka fjallað um risa í bandarískum hinsegin bókmenntum á 20. öld, James Baldwin. Fyrsta íslenska þýðingin á verkum hans er komin út, það er hans þekktasta skáldsaga, Giovanni’s Room eða Herbergi Giovanni eins og hún heitir í glæsilegri þýðingu Þorvaldar Kristinssonar.
Viðmælendur: Sólveig Ásta Sigurðardóttir, Unnur Steina K. Karls og Þorvaldur Kristinsson
Lesarar: Þorvaldur Sigurbjörn Helgason (eigin ljóð) og Felix Bergsson (úr Herbergi Giovanni)
Umsjón: Jóhannes Ólafsson
Fleiri þættir af Bara bækur
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026