Joanna Rubin Dranger, Sonurinn og Í landi sársaukans
Sonurinn heitir nýútkomin þýðing frá Uglu úgáfu. Þetta er stutt en áhrifamikil skáldævisaga eftir franska tónlistarstjórann og rithöfundinn Michel Rostain sem fjallar um eitt hræðilegasta áfall sem hugsast getur fyrir foreldri, að missa barn. Bókin hreppti hin virtu Goncourt-verðlaun árið 2011 og varð metsölubók í Frakklandi auk þess sem hún hefur verið þýdd á ýmis tungumál. Við ræðum við þýðanda verksins, Friðrik Rafnsson.
Alphonse Daudet var einn þekktasti rithöfundur Frakka á ofanverðri nítjándu öld þótt. Í landi sársaukans er afar sérstök bók, einskonar dagbókaskrif höfundar sem gefin var út að honum látnum. Þar hugleiðir Daudet dauðann og áralanga baráttu við banvænan sjúkdóm en um leið lífið sjálft. Færslurnar voru hugsanlega aðeins efniviður í meira unninn skáldskap en stendur eftir sem áður sem merkileg samtímaheimild og hugleiðingar um tilveruna.
Joanna Rubin Dranger frá Svíþjóð hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2023 fyrir myndaskáldsöguna Ihågkom oss till liv. Dranger var stödd hér á landi í byrjun maí og var haldinn viðburður í Norræna húsinu þar sem Tinna Ásgeirsdóttir tók við hana viðtal. Við heyrum glefsur úr því viðtali í þættinum.
Viðmælendur: Friðrik Rafnsson og Joanna Rubin Dranger.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Fleiri þættir af Bara bækur
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026