Bókasóun og faldar perlur nytjamarkaða, Alice Munro og Eyja
Í þættinum verður grúskað í bókum í Góða hirðinum og fjallað um bókasóun og faldar perlur sem leynast stundum í hillum nytjamarkaða. Fríða Þorkelsdóttir bókmenntafræðingur og safnari segir frá forvitnilegum fundi þegar hún keypti ljóðabók í hirðinum á klink sem hefði undir venjulegum kringumstæðum átt að kosta tugi þúsunda.
Við minnumst kanadíska nóbelshöfundarins og drottningar smásögunnar Alice Munro sem lést fyrir skemmstu. Þá rifjum við upp erlent viðtal við Munro sem Jórunn Sigurðardóttir þýddi í þættinum Orð um bækur árið 2014.
Og ný rödd Forlagsins, Ragnhildur Þrastardóttir, segir okkur frá nýútkominni nóvellu sem kallast Eyja.
Viðmælendur: Fríða Þorkelsdóttir og Ragnhildur Þrastardóttir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Fleiri þættir af Bara bækur
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026