Flagsól og Eitur
Ljóðabókin Flagsól kom út fyrir skemmstu og beinir hún sjónum sínum að íslenskum sveppum. Það eru þær Melkorka Ólafsdóttir skáld og Hlíf Una Bárudóttir teiknari sem gefa yfir 30 íslenskum sveppum rödd á afar listrænan hátt. Þar fléttast saman ljóð, teikningar og náttúruvísindi. Hvert ljóð er um eina sveppategund og endurspeglar ljóðið hugsun um sveppinn en speglar líka okkur mannfólkið og náttúruna sem heild. Sveppirnir, þessir hlutar vistkerfanna sem við gefum ekki endilega nægan gaum, eins og svo margt í mannlegu samfélagi sem við veitum ekki athygli.
Eitur er nýjasta glæpasaga Jóns Atla Jónassonar, handritshöfundar og leikskálds. Í nýju bókinni heldur Jón Atli áfram sögu utangarðslöggana og ólíkindatólana Dóru og Rado. Þau fá í hendur morðrannsókn sem leiðir lesendur inn í heim fíkninnar og lyfjaiðnaðarins, sem hefur gríðarleg áhrif og völd. Það eru fáir sem ekki hafa heyrt minnst á þann skaða sem ópíóðalyf af ýmsum gerðum hafa haft á samfélag víða um heim, líka hér á okkar litlu eyju.
Viðmælendur: Melkorka Ólafsdóttir, Hlíf Una Bárudóttir og Jón Atli Jónasson.
Tónlist: Changing Winds - Alexandra Stréliski, XI - Magnús Jóhann, Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Gnomes - Made in M & Walterwarm, Ullblekill - Kammersveitin.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Fleiri þættir af Bara bækur
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026