Veðurfregnir og jarðarfarir, Sjónsbók í útrás og orðabókaskrif
Ný bók með fræðigreinum um rithöfundinn Sjón var að koma út hjá breska bókarisanum Routledge, þetta sætir tíðindum því langt er síðan að alþjóðlegt fræðiverk var ritað um íslenskan rithöfund, síðast um Halldór Laxness. Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og bókaverja segir frá útgáfunni en hún ritstýrði því ásamt Lindu Badley, prófessor emerita í ensku og kvikmyndafræði hjá Middle Tennessee ríkisháskólanum og Gitte Mose, aðjúnkt emerita frá Oslóarháskóla.
Orðabækur eru líka bækur! Björn Halldórsson rithöfundur segir okkur hvernig það er að semja orðabókaskilgreiningar en Árnastofnun vinnur að gerð nýrrar íslensk-enskrar orðabókar á netinu.
Veðurfregnir og jarðarfarir heitir fyrsta skáldsaga Maó Alheimsdóttur sem áður hefur fengist við ljóðlist, pistla og gjörninga. Sagan segir frá veðurfræðingnum Helenu eða Lenu og flæðir frásögnin í tíma og milli landa, aðallega Íslands, Póllands og Frakklands en einnig upp í skýin. Lena, sem rannsakar veður og loftslag, sér skýrt hvað blasir við mannkyni, hrakandi heilsu loftslags á jörðu, hvernig það mun hafa áhrif á okkur og hefur áhrif á okkur. Veðrið speglar líka sálarlíf Lenu og ástar- og fjölskyldusambönd hennar. Innra með okkur öllum eru sviptingar í veðri og stundum loftslagsbreytingar.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson
Fleiri þættir af Bara bækur
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026