Booker-verðlaun, Vandamál vina minna og Effí Briest
Þýska stórvirkið Effí Briest eftir Theodor Fontane sem kom út 1895 var að koma út í íslenskri þýðingu í fyrsta sinn eftir Arthur Björgvin Bollason. Bókin er stór og mikill samfélagsspegill af 19. öldinni í Prússlandi og lífi og tilveru hinnar ungu Effí Briest og fólkinu í kringum hana. Bókin er gjarnan sett í hillu með Önnu Karenínu eftir Leó Tolstoj og Madam Bovarí eftir Gustave Flaubert. Arthur er búsettur í Þýskalandi en var staddur hér á landi þegar Bara bækur fengu hann í heimsókn til að segja betur frá Effí Briest.
Við förum niður í miðbæ Reykjavíkur og hittum skáldið Hörpu Rún Kristjánsdóttur sem var að gefa út ljóðabókina Vandamál vina minna. Það er stór og kröftug, femínísk ljóðabók sem hverfist um áföll og erfðir. Talsvert óheflaðri og beittari bók en Harpa hefur áður sent frá sér.
Við fáum líka Árna Matthíasson menningarblaðamann til þess að segja frá skáldsögunni Prophet Song sem hlaut Booker-verðlaunin í ár og voru afhent í vikunni. Það var írinn Paul Lynch sem hreppti verðlaunin í ár fyrir sína rammpólitísku dystópíu.
Viðmælendur: Árni Mattíasson, Harpa Rún Kristjánsdóttir og Arthúr Björgvin Bollason.
Lesari: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson
Fleiri þættir af Bara bækur
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription3. október 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan26. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026
- Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?19. september 2026