Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors
Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson. Síðasta áratuginn hefur Ocean Vuong skipað sér í fremstu röð í bandarískum samtímabókmenntum, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Hann hefur myndað sterk tengsl við Ísland og dvalið hér við skrif sín og átt í góðu listrænu vinasambandi við Björk. Ocean Vuong verður gestur þáttarins.
Sölvi Björn Sigurðsson segir frá ljóðaúrvalinu Haustsöngvar með þýðingum sínum á skáldskap franska skáldsins og symbólistans Pauls Verlaine. Verlaine var eitt af höfuðskáldum sinnar tíðar í Frakklandi. Örfá kvæði eftir Verlaine hafa verið þýdd áður en Sölvi fyllir vel upp í myndina af þessu merkilega skáldi í nýja safninu sem var að koma út hjá Dimmu og hann segir betur frá.
Síðustu dagar Klingsors, nóvella Nóbelsskáldsins Hermanns Hesse frá 1919, var að koma út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar. Sagan er að mörgu leyti viðbragð við breyttri heimsmynd eftir fyrri heimsstyrjöld, expressjónískt verk um tilgang lífsins og listarinnar og er skýrt dæmi um prósasnilld og sköpunargleði Hesse.
Viðmælendur: Ocean Vuong, Sölvi Björn Sigurðsson og Jón Bjarni Atlason.
Fleiri þættir af Bara bækur
- Planterhaug, Skepnufólk, Veisla þrjú14. nóvember 2026
- Planterhaug, Skepnufólk, Veisla þrjú14. nóvember 2026
- Heiðríkja, Deig og Tengdasonur Íslands7. nóvember 2026
- Heiðríkja, Deig og Tengdasonur Íslands7. nóvember 2026
- Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors24. október 2026
- Hverfa og Þrjátíu og sjö skáld í mynd17. október 2026