15. maí - Þreföld öryggisgæsla í Grindavík

· Íþróttir

Grindavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Tindastóli í kvöld og Besta sætið býst við miklum látum.
 
Forkólfar FIBA Europa fá að kynnast því besta, og mögulega því versta, sem íslenskur körfubolti hefur upp á að bjóða í kvöld. Mun Grindavík gera það sem Njarðvíkingum mistókst í gærkvöldi, tryggja titilinn?
FA bikarinn fer svo á loft á morgun. Einhvern veginn, eins og alltaf, er Chelsea í séns en Manchester City verður að teljast sigurstranglegri eftir að hafa hvílt allar helstu stórskytturnar.
Spennan magnast í enska boltanum og heil umferð fer fram í Bestu deild karla. Að ógleymdu PGA meistaramótinu, þar sem Rory McIlroy hefur látið kosta Nike margar milljónir dollara.

Besta sætið

Úr hlaðvarpinu

Besta sætið

bestasaetid

Allir þættir

Fleiri þættir af Besta sætið