Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa.
Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson fóru yfir sviðið á þessum ágæta þriðjudegi. Landsliðin okkar áttu sviðið þar sem bæði U21 árs liðið og A-landsliðið verða í eldlínunni í dag.
Þá átti 39 ára gamall Case Keenum stórleik í NFL-deildinni þrátt fyrir að vera að spila sinn fyrsta leik í þrjú ár.
Bónus-deild kvenna í körfubolta fer þá af stað í kvöld með þremur leikjum þar sem áhugavert verður að sjá KR og Grindavík sem spáð er góðu gengi.