17. apríl - Upp með hausinn Arsenal-menn!
Besta sætið heilsaði á Bestu deildar föstudegi. Þá er stórleikur fram undan hjá kvennalandsliðinu og risahelgi í enska boltanum.
Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Sindri Sverrisson fóru yfir málin í Besta sætinu á dýrindis föstudegi þar sem heil umferð í Bestu deild karla fer fram. Bjór verður á 800 krónur í KR-heimilinu, Þórsarar ætla á Rauða ljónið og sérlega margir eru að mæta fyrrum félögum sínum, þar á meðal Gísli Eyjólfsson, Atli Sigurjónsson, Danijel Djuric og Adolf Daði Birgisson.
Arsenal og Manchester City mætast í stórleik helgarinnar á Englandi þar sem margir segja enska meistaratitilinn undir. Það liggur við að stórleikir Chelsea við Manchester United og Everton við Liverpool blikni í samanburði.
Þá er risa verkefni sem blasir við stelpunum okkar. Glódís Perla Viggósdóttir verður leikjahæst í sögunni þegar Ísland mætir Englandi á Laugardalsvelli á morgun.
Fleiri þættir af Besta sætið
- 6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin6. október 2026
- 5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu5. október 2026
- 2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus2. október 2026
- 1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra1. október 2026
- 30. sept - Man City og Lúxus í Lúx30. september 2026
- 29. sept - Pressa á Arnari29. september 2026
