Besta sætið - 17. mars

· Íþróttir

Eiga stelpurnar okkar séns á stórri endurkomu gegn Portúgal? Af hverju í ósköpunum er körfuboltinn að taka sér handboltann til fyrirmyndar og fara í milliriðlakeppni?
Grindavík er orðinn deildarmeistari og það gæti reynst risastórt fyrir Ármann. Á sama tíma sést enginn möguleiki á því að Valur verði Íslandsmeistari en KR gæti gert atlögu að titlinum.
Svo má búast við allavega einni góðri endurkomu í Meistaradeildinni í kvöld, spurningin er bara hvaðan hún kemur? Sporting á kannski mesta sénsinn, Chelsea á allavega ekki séns.
Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins.

Besta sætið

Úr hlaðvarpinu

Besta sætið

bestasaetid

Allir þættir

Fleiri þættir af Besta sætið