Hætt 25 ára eftir þriggja ára meiðsli sem trufla enn daglegt líf
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen tilkynnti á samfélagsmiðlum í vikunni að fótboltaferli hennar væri lokið þrátt fyrir aðeins 25 ára aldur. Ferlinum lauk þó í raun fyrir rúmum þremur árum síðan en hún hefur ekki getað spilað eftir að hafa orðið fyrir mjaðmarmeiðslum í Svíþjóð. Hún var þá nýkomin út í atvinnumennsku eftir að hafa unnið bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn með Val 2022.
Atvinnumannadraumurinn varð því að martröð með meðfylgjandi andlegum þyngslum og ,eiðsli sem áttu þá að vara í örfáar vikur halda henni enn utan vallar og hafa raunar áhrif á daglegt líf hennar. Sólveig hefur ekki getað hlaupið síðan og glímir við verki dagsdaglega.
Að ljúka ferlinum fylgir sorg en einnig léttir þar sem hún horfir nú til framtíðar án þess að hafa bolta við tærnar. Hún fær bacherlorsgráðu í stjórnmálafræði í vor, stefnir í mastersnám erlendis í kjölfarið og fann sér nýtt lið þar sem hún er á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnarkosningar.
Valur Páll Eiríksson settist niður með Sólveigu og ræddi undanfarin þrjú ár, þroskann sem þeim fylgdi og það sem fram undan er.
Fleiri þættir af Besta sætið
- 6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin6. október 2026
- 5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu5. október 2026
- 2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus2. október 2026
- 1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra1. október 2026
- 30. sept - Man City og Lúxus í Lúx30. september 2026
- 29. sept - Pressa á Arnari29. september 2026
