22. júlí - EuroVikes, vonlaus Valur og Arnar í stuði

· Íþróttir

Víkingar vinna enn heimaleiki sína í Evrópukeppni þökk sé Nikolaj Hansen. Valskonur eru afskaplega slakar og markasúpa var í Bestu deild kvenna. Svo náði Afturelding sögulegum árangri. Besta sætið fór yfir sviðið.
Ágúst Orri Arnarson og Valur Páll Eiríksson ræddu málefni dagsins í Besta sætinu. Nikolaj Hansen var blár og marinn en var samt hetjan, annan Evrópuleikinn í röð í Víkinni.
18 mörk voru skoruð í tveimur leikjum í Bestu deild kvenna þar sem titilbaráttan harðnar, sem og botnbaráttan.
Afturelding er þá komið í úrslit Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn þökk sé liprum markverði og svo er áhugavert hvaða starf Donald Trump vill sjá Gianni Infantino taka við næst.

Besta sætið

Úr hlaðvarpinu

Besta sætið

bestasaetid

Allir þættir

Fleiri þættir af Besta sætið