Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg
Á rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta.
Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins, stjórn félagsins sagði af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti.
Alfreð fer hér yfir fyrsta rúma árið í starfi, samstarfið með Frey og önnur tengd mál. Meðal annars gullmolann sem félagið hefur klófest með einum mest spennandi sóknarmanni Skandinavíu að mati Alfreð sem var sjálfur markamaskína á sínum leikmannaferli.
Fleiri þættir af Besta sætið
- 6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin6. október 2026
- 5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu5. október 2026
- 2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus2. október 2026
- 1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra1. október 2026
- 30. sept - Man City og Lúxus í Lúx30. september 2026
- 29. sept - Pressa á Arnari29. september 2026
