Biblían á mannamáli - Hlaðvarp fyrir lífið

Halldór Lár

Trúarbrögð

Saga - Menning - Samhengi - Trú  Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla. Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is biblianam@outlook.com

Dagur 63 - Ókunni Guðinn

Páll og Sílas flæmdir úr Þessaloníku færa sig til Beroju, þar sem kristni nær fótfestu hjá gyðingum og konum úr efri stéttum. Páll fer síðan til Aþenu þar sem hann ræðir meðal annars við heimspekinga og heldur fræga ræðu um altari hins ókunna guðs - við skoðum söguna á bak við það altari. Þátturinn tengir saman ferðalög, trúboð og heimspekilegar umræður - og sýnir hvernig Páll aðlagar boðskap sinn að menningu og leit að sannleika meðal ólíkra áheyrenda, án þess þó að breyta fagnaðarerindinu. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church.

Dagur 62 - Ásakanir og óeirðir

Í þættinum er farið yfir ferðir Páls postula og fylgdarlið hans í Þessalóníku á annarri trúboðsferðinni: hvernig þeir boðuðu Krist sem Messías, urðu til breytinga meðal fólks og urðu fyrir mótstöðu vegna keisaradýrkunar og borgaræsings. Sagan lýsir heimsóknum í samkunduhús, hittingi hjá Jason, uppreisn almennings, ákærum fyrir að raska friði. Við sjáum hvernig Páll, Sílas og Tímóteus brugðust við áskorunum og byggðu upp lifandi samfélag trúaðra. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church

Dagur 61 - Blóð, sviti og söngur

Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir Postulasöguna, kafla 16 - 17, þar sem Páll og Sílas eru í fangelsi í Filippí  og syngja hástöfum. Jarðskjálfti losar fjötra þeirra. Fangavörðurinn og fjölskylda hans taka boðskapinn og snúa til trúar á Krist. Þátturinn skoðar einnig hvernig fyrstu söfnuðirnir mynduðust, hlutverk kvenna eins og Lýdíu, menningu stórborga eins og Þessaloníku og hvernig trúin breytir lífi fólks þrátt fyrir ofsóknir og erfiðleika.

Dagur 60 - Var Lýdía sú fyrsta?

Páll postuli, Sílas, Tímóteus og Lúkas koma til Filippi eftir siglingu frá Tróas til Neapólis og göngu eftir Via Egnatia. Filippi er rómversk nýlenda með sterka keisaradýrkun og fámennan hóp gyðinga, þannig hittast trúaðar konur niður við ána, en ekki í samkunduhúsi.  Við ána prédikar Páll fyrir hópnum og Lýdía, efnuð kaupkona frá Þýatíruborg, tekur við boðskapnum, skírast og opnar heimilið sitt fyrir postulunum. Ambátt með spásagnaranda fylgir hópnum og Páll rekur andann út í nafni Jesú. Eigendur ambáttarinnar reiðast og kalla saman mannfjölda; Páll og Sílas eru, barðir og hnepptir í fangelsi þrátt fyrir réttindi sem rómverskir ríkisborgarar. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Dagur 59 - Maðurinn frá Makedóníu

Í þessum þætti ræðum við um Postulasöguna 15:36–41: Páll og Barnabas halda aftur til safnaðanna í Galatíu, en deila um að taka Markús með sér. Barnabas fer til Kýpur með Markúsi, en Páll tekur Sílas og síðar Tímóteus með sér í nýja trúboðsferð. Við skoðum hvernig frásagan tengir allt saman og leiðir til bréfaskrifa postulanna. Innra líf safnaðanna hélt þeim sterkum þrátt fyrir átök og ofsóknir. Maður frá Makedóníu kemur og talar við Pál.  Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Ýmsar heimildir: Frank Viola - The Untold Story

Dagur 58 - Saltvatnsbrunnur

Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þættinum ljúkum við yfirferð á Jakobsbréfinu: skoðum ástandið innan safnaðanna, mismunun á milli ríkra og fátækra og boðskapinn um að trúin beri góðan ávöxt. Við ræðum hvernig orð okkar og dagleg hegðun afhjúpa hjartað, notum myndlíkingar um beisli og stýri varðandi stjórn tungunnar og skoðum áherslur um kærleika og réttlæti.

Dagur 57 - Fullkomið lögmál frelsisins

Í þættinum fáum við innsýn í Jakobsbréf 1:19–27. Við ræðum um að vera fljót til að hlusta og heyra, sein til að tala og sein til reiði; um mikilvægi þess að taka við orðinu og vera gerendur þess frekar en aðeins heyrendur. Við tengjum þetta við Jesú sem er lifandi orð og frelsandi lögmál. Þátturinn vekur athygli á valdi tungunnar, umhyggju fyrir fátækum og því hvernig sönn trú birtist í kærleiksríkum verkum. Við byrjum og endum með bæn um að sjá Guðs nærveru í daglegu lífi.

Dagur 56 - Engir flöktandi skuggar

Jakobsbréfið, kafli 1: um að finna gleði í þrautum, þroska trúarinnar og hvernig þol og verk sýna sanna trú. Jakob talar til gyðingakristinna í dreifingunni um átök, misrétti og ábyrgð gagnvart fátækum. Þátturinn fjallar einnig um að biðja Guð um visku, að forðast tvílyndi, að trú án verka sé dauð, og að Guð sé Faðir ljósanna - stöðugur, góður og fullur af náð.

Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú

Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls. Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum — allt er þetta sett í raunverulegt samfélagslegt samhengi frumkirkjunnar. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Tilvísun: The Untold Story / Frank Viola

Dagur 54 - Innan frá og út

Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti skoðum við hvernig Páll ber saman frelsið í Kristi og kröfur lögmálsins, og varar við að leita aftur til þvingun utan frá og inn.  Hann kallar okkur til að lifa í anda: ekki nota frelsið til að svala eigingirninni, heldur láta ávöxt andans birtast í kærleika, gleði, friði, þolgæði og góðvild - að lifa innan frá og út.