Guð-spjall

Steinunn A Björnsdóttir

Samtal um ýmsa texta Biblíunnar, sögurnar, táknin og túlkunina.

Sálmar í stríði og Benóný á ballinu

Í þessum þætti verður aðeins brugðið út af vananum og í stað þess að ræða texta næsta sunnudags tölum við um sálmabækur að fornu og nýju, deilurnar um Leirgerði, um það þegar Matthías Jochumsson var lagfærður og um sálma á arabísku. Við fjöllum líka um túlkunar- og textafræði dægurlaga - var það Benóný eða Benjamín á ballinu og hvernig tengist það fyrstu Mósebók?

Páskar enn og aftur

Spjallað um atburði kyrruviku frá ýmsum sjónarhornum.

Vatni breytt í vín í þurrum janúar

Þarf alltaf að vera vín? Brúðkaupið í Kana getur verið erfitt að skilja ef áfengismagnið truflar okkur. Hvað var Jesús að fara með þessu? Og tengist þessi saga Bakkusarátrúnaði? Var Jesús dónalegur við mömmu sína? Og hvaða Guð er það sem við sjáum bara hnakkann á? Þetta og fleira og fleira til umræðu í þætti um texta 2. sunnudags eftir þrettánda. Textarnir eru hér:  Lexía: 2Mós 33.17-23 Pistill: Róm 12.6-15 Guðspjall: Jóh 2.1-11 Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar. Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans. En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: „Þeir hafa ekki vín.“ Jesús svarar: „Hvað viltu mér, kona? Minn tími er ekki enn kominn.“ Móðir hans sagði þá við þjónana: „Allt það sem hann segir ykkur, það skuluð þið gera.“ Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá. Jesús segir við þá: „Fyllið kerin vatni.“ Þeir fylltu þau á barma. Síðan segir hann: „Ausið nú af og færið veislustjóra.“ Þeir gerðu svo. Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki hvaðan það var en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann og sagði: „Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara er menn gerast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú.“ Þetta fyrsta tákn sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína og lærisveinar hans trúðu á hann.

Andar í varðhaldi og apokrýfan

Fyrsta Pétursbréf hefur stutta en dularfulla setningu um að Jesús hafi predikað fyrir öndunum í varðhaldi. Tengist það etv. frásögn í apókrýfu Pétursguðspjalli? Og hvað þýðir skírnin? Hver sá dúfuna og heyrði röddina? Það eru engin einföld svör en ótal spurningar í þessu hlaðvarpi um texta fyrsta sunnudags eftir Þrettándann 2022.  Hér eru textarnir sem eru til umræðu:  Pistill: 1Pét 3.18-22 Guðspjall: Matt 3.13-17 Þá kom Jesús frá Galíleu að Jórdan til Jóhannesar að taka skírn hjá honum. Jóhannes vildi varna honum þess og sagði: „Mér er þörf að skírast af þér og þú kemur til mín!“ Jesús svaraði honum: „Lát það nú eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti.“ Og Jóhannes lét það eftir honum. En þegar Jesús hafði verið skírður sté hann jafnskjótt upp úr vatninu. Og þá opnuðust himnarnir og hann sá anda Guðs stíga niður eins og dúfu og koma yfir sig. Og rödd kom af himnum: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“

Jólaþáttur 2021: ljósmæður og lítil orð

Hvað er í jólagruðspjallinu og hvað er ekki. Hvað höldum við að sé þar og hvað hugsum við aldrei um? Og hversu lengi er hægt að ræða um gríska orðið και (kæ eða ke)? Hvað sögðu englarnir? Þetta og ýmislegt annað í jólaþættinum sem vísar talsvert til þáttar nr. 21 um jólagruðspjallið. Mælt með hlustun á hann líka - já og 22 og 23! Gleðileg jól.

Auðmýkt, asnar og aðventa

Létt spjall um texta aðventunnar og ýmsa fleiri texta.

Þetta er auðvitað kolrangt! Spjallað um þýðingaraðferðir og annað skemmtilegt

Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson er gestur þáttarins að þessu sinni og ræðir við okkur um þýðingaraðferðir. Sérstaklega er rætt um Jesaja og þakkarsálm Hiskia konungs, sem var viðfangsefni doktorsrannsóknar hans. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós, t.d. leysir hann þýðingarvanda sem aðrir hafa verið ráðþrota yfir. En hér er textinn sem er til umræðu og það er 16 versið sem hefur valdið mestum heilabrotum.  9 Sálmur sem Hiskía, konungur Júda, orti þegar hann hafði náð sér af veikindum sínum: 10Ég sagði: Á miðjum aldri verð ég að fara burt, kvaddur að hliði heljar þau ár sem ég á eftir. 11Ég sagði: Ég fæ ekki að líta Drottin á landi lifenda, fæ ekki framar menn að sjá meðal þeirra sem byggja heiminn. 12Bústaður minn var rifinn niður, vafinn saman eins og tjald hjarðmanns. Þú vafðir líf mitt upp eins og vefari, skarst mig frá uppistöðunni. Frá morgni til kvölds þjakar þú mig. 13Allt til morguns hrópaði ég á hjálp, hann molaði öll mín bein eins og ljón. 14Ég tísti eins og svala, kurraði sem dúfa, augu mín mæna til hæða. Drottinn, ég er aðþrengdur, bjargaðu mér. 15Hvað get ég sagt? Hann hefur bæði sagt mér þetta og gert það sjálfur. Ég vil ganga í auðmýkt öll æviár mín þrátt fyrir beiskju lífs míns. 16Drottinn, vegna þessa lifa menn og því mun líf mitt styrkjast og þú munt veita mér heilsu og líf. 17Beiskja mín varð mér til góðs, þú varðveittir líf mitt frá gröf eyðingarinnar því að þú varpaðir öllum syndum mínum aftur fyrir þig. 18Helja þakkar þér ekki, dauðinn lofar þig ekki, þeir sem hverfa í gröfina vona ekki á trúfesti þína. 19Sá einn sem lifir þakkar þér eins og ég nú í dag. Feður munu segja börnum sínum frá trúfesti þinni. 20Drottinn, þér þóknaðist að hjálpa mér, því skulum vér leika á strengi við hús Drottins alla ævidaga vora.

Hafið, ógnin og umvöndunarháttur þátíðar

Voru lærisveinarnir hræddir við smá golu? Af hverju beitti Páll umvöndunarhætti þátíðar? Og hver er þessi maður að vindur og vatn hlíða honum? Textar sjómannadags skoðaðir í stuttu spjalli um textanna, sjómennsku og sjómannadaginn. Lexía: Slm 107.1-2, 20-31 Pistill: Post 27.13-15, 20-25 Guðspjall: Matt 8.23-27 Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“ Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn. Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“

Gestrisni er trúariðkun. Saga úr Mamre-lundi

Ekki er allt sem sýnist þegar þrír menn heimsækja Abraham. Þekkt saga sem segir margt. Kunnug úr fleiri trúarhefðum, túlkuð á ýmsan hátt, meðal annars í tengslum við þrenninguna. Textar þrenningarhátíðar skoðaðir. Lexía: 1Mós 18.1-5 Pistill: 2Kor 13.11-13 Guðspjall: Matt 11.25-27 Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt. Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.

Eldfim tunga og erfiðar þýðingar

Hvítasunnuundrið, Kinnin og Nasaret, besta veðrið til að þurrka steinbít, hið eilífa vor og mál beggja kynja - hér er komið víða við í spjalli um texta hvítasunnu.  Lexía: Jl 3.1-5 Síðar mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, gamalmenni yðar mun dreyma drauma og ungmenni yðar munu fá vitranir, jafnvel yfir þræla og ambáttir mun ég úthella anda mínum á þeim dögum. Og tákn mun ég láta verða á himni og jörð: blóð, eld og reykjarstróka. Sólin verður myrk og tunglið sem blóð áður en dagur Drottins kemur, hinn mikli og ógurlegi. En hver sem ákallar nafn Drottins verður hólpinn. Á Síonarfjalli og í Jerúsalem munu nokkrir lifa af eins og Drottinn hefur heitið. Hver sem ákallar nafn Drottins mun frelsast. Pistill: Post 2.1-4 (-11) Þá er upp var runninn hvítasunnudagur voru allir saman komnir á einum stað. Varð þá skyndilega gnýr af himni, eins og óveður væri að skella á, og fyllti allt húsið þar sem þeir voru. Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvert og eitt þeirra. Allir fylltust heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla. (Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum. Er þetta hljóð heyrðist kom allur hópurinn saman. Þeim brá mjög við því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu. Menn voru frá sér af undrun og sögðu: „Eru þetta ekki allt Galíleumenn sem hér eru að tala? Hvernig má það vera að við, hvert og eitt, heyrum þá tala okkar eigið móðurmál? Við erum Partar, Medar og Elamítar, við erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu, frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene og við sem hingað erum flutt frá Róm. Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Við heyrum þá tala á tungum okkar um stórmerki Guðs.“) Guðspjall: Jóh 14.23-31a Jesús svaraði: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá honum. Sá sem elskar mig ekki varðveitir ekki mín orð. Orðið, sem þér heyrið, er ekki mitt heldur föðurins sem sendi mig. Þetta hef ég talað til yðar meðan ég var hjá yður. En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni mun kenna yður allt og minna yður á allt það sem ég hef sagt yður. Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist. Þér heyrðuð að ég sagði við yður: Ég fer burt og kem til yðar. Ef þér elskuðuð mig yrðuð þér glöð af því að ég fer til föðurins því faðirinn er mér meiri. Nú hef ég sagt yður það áður en það verður svo að þér trúið þegar það gerist. Ég mun ekki framar tala margt við yður því höfðingi heimsins kemur. Í mér á hann ekkert. En heimurinn á að sjá að ég elska föðurinn og geri eins og faðirinn hefur boðið mér.