Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧

Hver kannast ekki við þessa spurning? og hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn, dag eftir dag, allt árið um kring. Sérstaklega þegar maður er í orlofi með barn sem er byrjað að borða og þarf allt í einu að hugsa um 4-6 máltíðir á dag. Lofum skemmtilegu jappi um mat og líka einhverjum höxum til að létta foreldrum lífið!

Haust 🤎🍂
Haustið, Halloween, kertaljós og kósý! Þátturinn er í boði: 🩵 Fjarðarkaup 🩵 KIDS-WORLD 🩵 Vörður 🩵 Child´s Farm

Í þessum þætti afhjúpum við okkur aðeins sem mæður og deilum alls konar hlutum sem við gerum, höfum gert eða höfum einfaldlega ekki nennt að hafa áhyggjur af... og sem gætu mögulega sent aðrar mömmur í coma! Þátturinn er í boði: 🩵 Vörður 🩵 Fjarðarkaup 🩵 Kids-World 🩵 Childs Farm

Í þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar. Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og foreldrasamvinnu. Hvernig er að sameina fjölskyldur? Hvað gerist þegar upp koma árekstrar og ólíkar væntingar? Og hvernig getum við byggt upp góð tengsl innan fjölskyldunnar? Valgerður hefur bæði persónulega reynslu af stjúpfjölskyldum og faglega þekkingu á þessum málum, svo þetta varð virkilega skemmtilegt og fróðlegt spjall.

Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom til okkar og ræddi kynlíf og sambönd fólks á barneignaraldri. Það getur verið krefjandi fyrir sambandið að ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og fyrstu árin með ung börn, þegar tími og orka fara oft í annað en sambandið sjálft.

Fengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination communication", sem getur sparað manni ansi margar bleyjur og bleyjuskipti! Mjög áhugavert spjall þar sem Sara gefur góð ráð fyrir börn á öllum aldri. Það er nefnilega aldrei of seint að byrja ✨

Fengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér. Við ræðum líka flutningana hennar frá Barein til Íslands og hvernig það reyndist mun flóknara en hún bjóst við að flytja tvo hunda með sér heim 🐶🐶

Helena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu. Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym Mér Ei, sem styður við foreldra og fjölskyldur sem missa á meðgöngu eða í og eftir fæðingu. Í þættinum ræðum við um sorgarferlið, mikilvægi stuðnings og hvernig félagið vinnur að því að litlu ljósin fái að lifa áfram í minningunni.

Við fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við kemur svona ferðalagi. Þórhildur deilir fullt af gagnlegum ráðum og reynslu fyrir þá sem dreyma um að skella sér í svipað ævintýri, hvort sem það er í fæðingarorlofi eða á öðrum tímapunkti í lífinu. Skemmtilegt mömmuspjall um algjöra draumaferð! 🏖️✈️☀️

Orðablik
Fengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við góðan málþroska barna og ræða hvernig við getum nýtt daglegar stundir til að efla málþroskann. Við förum einnig yfir skjátíma, þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir í dag og hvernig hægt er að fjölga gæðastundum fjölskyldunnar án þess að skjár komi til sögu.



