Snjólaug Lúðvíks - frumbyrja við dauðans dyr 👵🏼
Snjólaug Lúðvíksdóttir, uppistandari, handritshöfundur og mamma, kom til okkar í skemmtilegt spjall.
Snjólaug varð mamma 39 ára og hefur óspart gert grín að upplifun sinni af því að vera „gömul frumbyrja“ eða frumbyrja við dauðans dyr eins og hún segir í uppstandinu sínu 😂👵🏼.
Við ræðum við hana um móðurhlutverkið og alls konar skemmtilegt sem fylgir lífinu eftir að hún varð mamma.
