Leikskólamálin með Höllu Gunnarsdóttur
Í þessum þætti ræðum við við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um leikskólamálin sem hafa verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Sveitarfélögin eru mörg hver farin að bjóða sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla. Við ræðum um pressuna á foreldra, áskoranir starfsfólks leikskóla og hvort við séum á réttri leið í að byggja upp kerfi sem virkar fyrir börn, foreldra og samfélagið allt.
Mjög áhugavert og mikilvægt spjall um eitt heitasta málefni landsins um þessar mundir.
