Þriðji þriðjungur meðgöngu
Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨
Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.
