#281 Topp 10 með Ásgeiri Sigurðs
Ásgeir Sigurðsson er ungur kvikmyndagerðarmaður en hann gerði ásamt Antoni Karli kvikmyndina Harmur sem kom út árið 2021.
Ásgeir gaf út fyrir stuttu sjónvarpsseríuna Gestir en serían er á streymisveitu Símans. Ásgeir skrifaði þættina, leikstýrði, framleiddi og leikur aðalhlutverkið ásamt Diljá Pétursdóttur.
Ásgeir kíkti til Hafsteins og ræddi þættina og kom einnig með sinn topp 10 lista yfir sínar uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu sterk asísk kvikmyndagerð er, hversu magnaður leikari Ryan Gosling er, hvaða mynd hefur haft mestu áhrifin á Ásgeir, hversu sturlaður Denis Villeneuve er sem leikstjóri og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Fleiri þættir af Bíóblaður
- #339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland30. september 2026
- #338 Topp 10 með Snorra Rafni10. september 2026
- #337 Topp 10 með Coach Clean2. september 2026
- #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier24. ágúst 2026
- #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins6. janúar 2026
- #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni21. desember 2025






