Bíóblaður

Hafsteinn Sæmundsson

Kvikmyndir

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

#339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland

Content creatorinn Alex Michael Green Svansson (Alex from Iceland) kíkti til Hafsteins til að ræða sérstaklega The Odyssey og stöðuna á Marvel í dag. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Spider-Man: Brand New Day, hversu vel The Odyssey heppnaðist, hvort Avengers: Doomsday geti bjargað Marvel heiminum, hvort Dune 3 verði betri en númer 2 og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Coco Coast drykkurinn 05:34 - The Odyssey 1:00:00 - Brand New Day og Doomsday 2:03:31 - Hvað klikkaði með Blade myndina? 2:15:46 - The Batman Part II 2:22:27 - Dune og Obsession

#338 Topp 10 með Snorra Rafni

Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022. Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars ástríðu Snorra á kvikmyndum, hversu mikill Daniel Day-Lewis aðdáandi Snorri er, hvort Stanley Kubrick sé ofmetinn leikstjóri, hversu vanmetin Joker 2 er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Snorri Rafn eða Snow Raven 06:40 - Leiklist og kvikmyndaáhugi 32:00 - Honorable mentions 36:38 - Capote 40:20 - Phantom Thread 46:33 - There Will Be Blood 54:42 - Joker 1:03:28 - Dr. Strangelove 1:20:38 - Vonarstræti 1:32:55 - Eternal Sunshine of the Spotless Mind 1:42:10 - The Piano Teacher 1:46:44 - Forrest Gump 1:54:10 - Uppáhalds myndin hans Snorra 2:10:17 - Hot takes og grín

#337 Topp 10 með Coach Clean

Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu mikill Will Smith aðdáandi Orri er, hvort það ætti að gera enn eina Ocean’s Eleven mynd, hvort Heat 2 verði góð, hver er lélegasta Tarantino myndin og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Hvað gerir Coach Clean? 11:41 - Orra gæði 14:51 - Kvikmyndaspjall 24:27 - Honorable mentions og Will Smith 33:38 - Topp 10 listinn 35:17 - Tropic Thunder 49:57 - Snatch 56:17 - Ocean’s Eleven 1:07:11 - The Hateful Eight 1:19:22 - The Rock 1:30:30 - The Departed 1:40:25 - Die Hard with a Vengeance 1:54:04 - The Dark Knight 2:07:13 - Heat 2:21:42 - Uppáhalds myndin hans Orra 2:43:41 - Lokaorð

#336 Bransaspjall með Christof Wehmeier

Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda. Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum og Skífunni. Frá árunum 2007 til 2025 starfaði hann sem kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands þar sem hann kynntist vel innlendri kvikmyndagerð. Christof hefur einnig leikið lítil hlutverk í ýmsum verkefnum og hefur skrifað handrit. Hafsteinn var spenntur að spjalla við hann en í þættinum ræða þeir meðal annars ferilinn hans Christof, bestu Michael Mann myndina, stöðuna á Star Wars í dag, hversu mikil áhrif A.I. mun hafa á bransann, hvort Christopher Nolan sé stærsti leikstjóri heims í dag og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Hver er Christof Wehmeier? 04:41 - Christof og markaðssetning á kvikmyndum 20:53 - Christof, KMÍ og innlend kvikmyndagerð 35:17 - Innlend og erlend kvikmyndagerð á Íslandi 42:11 - Unga kynslóðin í kvikmyndagerð 53:35 - Christopher Nolan 57:20 - Nýjar raddir fyrir unga fólkið 1:00:26 - Christopher Nolan 1:03:43 - Ofurhetjur og Dunesday 1:11:29 - Netflix myndir og streymisveitur 1:21:08 - Er Hollywood á góðum stað í dag? 1:31:27 - Kvikmyndafókus hefur breyst 1:33:53 - Eldri kvikmyndir vs. nýjar 1:41:20 - Norræn kvikmyndagerð 1:48:26 - Star Wars 1:56:39 - Framhaldsmyndir 2:02:26 - Michael Mann 2:06:01 - Handritagerð 2:19:12 - James Bond 2:31:13 - Gervigreind 2:35:45 - Ásgeir Kolbeins fór með rangt mál 2:37:41 - Tom Cruise

#335 2025 með Ásgeiri Kolbeins

Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025. Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ballerina hafi gengið vel sem John Wick mynd, hvort Ásgeir gæti sjálfur skrifað betri Jurassic Park mynd en myndirnar sem hafa komið út undanfarin ár, hversu slæmt ár þetta var fyrir Marvel, hvort það sé einhver von fyrir DC heiminn og margt, margt fleira. 00:00 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:14 - Intro 00:29 - Ásgeir Kolbeins fær gjöf 03:19 - Avatar: Fire and Ash 23:20 - Var árið gott? 32:42 - One Battle After Another 51:03 - Sinners 1:10:07 - Weapons 1:30:35 - Jurassic World: Rebirth 1:37:51 - Marvel myndir ársins 1:57:50 - Ballerina og Nobody 2 2:24:19 - Grínmyndir ársins 2:39:16 - Mission Impossible: The Final Reckoning 2:55:35 - F1 2:58:36 - Superman 3:12:55 - Sjónvarpsseríur og Alien: Earth

#334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni

Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar. Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörda stuff, bardagastjörnur og margt, margt fleira. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Bíóblaður er jólagjöfin í ár! 00:10 - Intro 00:25 - Jólaþátturinn í ár! 00:48 - Er Die Hard jólamynd? 03:22 - Bíóblaður spurningaspilið er komið í verslanir! 04:35 - Best of the Best úrslitaþáttur 14:48 - Atriði 30:22 - Almennar spurningar 41:48 - Plakatleikur 52:45 - Rétt eða rangt 1:02:19 - Persónur og leikarar 1:19:38 - Valmöguleikar 1:35:34 - Flokkar (Ártöl, Löggur og bófar, Nörda stuff, Bardagastjörnur) 1:57:29 - Sigurvegarar krýndir

#333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat

Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira.

#332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni

Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey. Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch quiz-i ársins. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, James Bond, hryllingsmyndir, klassískar myndir og atriði úr bíómyndum. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:38 - Hugleikur er að gefa út spil fyrir jólin 07:10 - Best of the Best 11:40 - Plakatleikur 31:31 - Almennar spurningar 42:11 - Persóna og leikari 55:01 - Rétt eða rangt 1:02:25 - Atriði 1:11:08 - Flokkar (James Bond, Hryllingur, 1984, Bíómix) 1:35:58 - Sigurvegarar krýndir

#331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael

Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, evrópskar myndir, Clint Eastwood og Jessica Chastain. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 01:58 - Ísrael og Kilo 03:04 - Tveir á toppnum (Oddur og Tóti) 10:40 - Almennar spurningar 16:00 - Plakatleikur 25:19 - Rétt eða rangt 38:09 - Atriði 50:06 - Hugh Jackman eða Jessica Chastain 59:17 - Persónur og leikarar 1:14:32 - Flokkar (Clint Eastwood, DC, Evrópa, Klassískar myndir) 1:36:40 - Sigurvegarar krýndir

#330 Nördaspjall með John Inga Matta

John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar. John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels. Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekki einungis í bransanum heldur er hann algjört bíónörd. Í þessum risa þætti fara strákarnir um víðan völl en þeir ræða meðal annars bransann, franskar hryllingsmyndir, asískar hasarmyndir, John Woo, Marvel, stöðuna á Star Wars í dag, hvort James Gunn eigi eftir að standa sig vel með DC heiminn, Sinners, Weapons, One Battle After Another og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Samanburður á ólíkum myndum 09:16 - Hver er John Ingi? 16:17 - Íslenski bransinn 24:55 - Hryllingsmyndir 48:40 - The Raid og erlendir aðilar í Hollywood 51:39 - Franskar hryllingsmyndir og A Serbian Film 1:05:25 - Suður-Kóreskar og japanskar myndir 1:18:53 - Tony Jaa og Chow-Yun Fat 1:29:10 - John Wick og Ballerina 1:35:05 - Weapons og Sinners 1:51:04 - One Battle After Another 2:10:46 - Keanu Reeves, John Wick og The Matrix 2:22:55 - Star Wars, Disney og Netflix 2:58:59 - Marvel 3:12:14 - DC 3:27:45 - Ástríða fyrir bíómyndum og gervigreind

Þér gæti líka líkað...