#268 2023 Quiz: Gummi Sósa vs. Snorri vs. Oddur Klöts
Árið er senn á enda og Hafsteinn ákvað að enda það með stæl með því að fá núverandi spurningameistarann, Snorra Guðmundsson, til að koma og verja titilinn sinn í 2023 spurningakeppni. Hafsteinn bauð einum Bíóblaðurs fastagesti, Gumma Sósu, til að keppa við Snorra en Gummi Sósa hefur komið sterkur inn sem þrælskemmtilegur gestur og verðugur andstæðingur.
Strákunum var hinsvegar komið á óvart með öðrum keppanda, Oddi Klöts, en Oddur mætti óvænt í miðjum upptökum. Úr varð frábær keppni þar sem strákarnir skiptast á að svara 2023 kvikmynda og sjónvarpsþátta spurningum.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Fleiri þættir af Bíóblaður
- #339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland30. september 2026
- #338 Topp 10 með Snorra Rafni10. september 2026
- #337 Topp 10 með Coach Clean2. september 2026
- #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier24. ágúst 2026
- #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins6. janúar 2026
- #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni21. desember 2025






