#251 Succession með Óla Bjarka
Óli Bjarki kíkti til Hafsteins til að ræða eina bestu sjónvarpsseríu allra tíma, Succession. Succession kemur frá HBO og hefur unnið til margra verðlauna.
Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort þetta séu bestu þættir sem hafa verið framleiddir, húmorinn í þáttunum, hversu gott tvíeyki Tom og Greg eru, Jeremy Strong og hans frammistöðu sem Kendall Roy, hvernig Óla fannst endirinn vera, hvort það hefði verið sniðugt að halda áfram og gera seríu 5, Brian Cox og hans frammistöðu sem Logan Roy og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Fleiri þættir af Bíóblaður
- #339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland30. september 2026
- #338 Topp 10 með Snorra Rafni10. september 2026
- #337 Topp 10 með Coach Clean2. september 2026
- #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier24. ágúst 2026
- #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins6. janúar 2026
- #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni21. desember 2025






