Bíóblaður áskrift #23 - Sexy 90’s með Kiddu Svarfdal
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —
Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins til að ræða erótíska þrillera. Í þættinum ræða þau myndirnar Basic Instinct, Sliver, Jade og Color of Night en þessar myndir voru þó nokkuð vinsælar á tíunda áratugnum.
Þau ræða einnig hversu mikill aldursmunur var á Michael Douglas og Sharon Stone í Basic Instinct, hversu hræðilegur söguþráðurinn er í Color of Night, hversu ágengur Tom Berenger var í Sliver, hversu algengar reykingar voru á þessum tíma, kynlífsatriðin, hvort svona myndir séu í rauninni eitthvað kynþokkafullar og margt, margt fleira.
Þátturinn er 135 mínútur.
Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Fleiri þættir af Bíóblaður
- #339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland30. september 2026
- #338 Topp 10 með Snorra Rafni10. september 2026
- #337 Topp 10 með Coach Clean2. september 2026
- #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier24. ágúst 2026
- #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins6. janúar 2026
- #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni21. desember 2025






