#58 Grjóthörð með Kilo og Hödda

· Kvikmyndir

Rapparinn Kilo og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins og í þetta skipti ákváðu strákarnir að setja saman lista yfir hörðustu karlkyns og kvenkyns kvikmyndapersónur allra tíma.
 
Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu harður John McClane er, hvort Liam Neeson eigi að hætta að gera endalausar B-útgáfur af Taken, hvernig Maggie Q var eins og Terminator í Die Hard 4, hvernig Michelle Pfeiffer er það besta við Batman Returns, hvort það sé einhver sem er harðari en John Wick og margt, margt fleira.

Bíóblaður

Úr hlaðvarpinu

Bíóblaður

Hafsteinn Sæmundsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Bíóblaður