#56 Bransaspjall með Baldvini Z
Baldvin Z er einn af okkar fremstu kvikmyndagerðarmönnum og Hafsteini fannst því mjög áhugavert að fá hann í þáttinn og spyrja hann út í ýmislegt sem tengist kvikmyndagerð. Baldvin hefur meðal annars gert bíómyndirnar Vonarstræti og Lof mér að falla. Þær slógu í gegn hjá bæði áhorfendum og gagnrýnendum.
Baldvin hefur líka unnið við sjónvarpsþáttagerð og vinnur nú að því að hefja upptökur á nýrri glæpaseríu sem kallast Svörtu Sandar.
Í þættinum segir Baldvin frá því hver fyrstu skrefin eru þegar hann byrjar á nýju verkefni, hvernig hann skrifar með öðrum, hvað hann þurfti að gera til að komast inn í bransann, af hverju hann ásamt öðrum stofnuðu framleiðslufyrirtækið Glassriver, hvernig kvikmyndabransinn snýst mikið um að leysa vandamál og margt, margt fleira.
Fleiri þættir af Bíóblaður
- #339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland30. september 2026
- #338 Topp 10 með Snorra Rafni10. september 2026
- #337 Topp 10 með Coach Clean2. september 2026
- #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier24. ágúst 2026
- #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins6. janúar 2026
- #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni21. desember 2025






