Happy New Year (2014)

· Kvikmyndir

Indverskar kvikmyndir. Hingað til hafa þær ekki mikið komið til tals (ókei, bara ekki neitt!) í Bíófíklum en hér og nú skal bæta úr því með stæl. Gestur þáttarins, Elín Ingibjörg Eyjólfsdóttir, er fæddur Bollywood-unnandi að eigin sögn og er sest ásamt Kjartani til að skóla hann örlítið í einkennum slíkra mynda og maukstúdera umrædda verkið sem varð fyrir valinu.
Kjartan stóðst þessa áskorun Elínar eins og mikill meistari og er óhætt að segja að HNY sé endemis veisla. En hvers konar veisla er það sem brýnt er að klóra sér í kollinum yfir.
Upp með kuflana og spörum ekki danssporin á meðan við bjóðum Elínu velkomna í stúdíóið.

Efnisyfirlit:
00:00 - Um Bollywood
02:10 - Talsett vs. textað
06:16 - HVAÐ er þessi mynd?...
10:06 - “Eurovision í Dubai”
18:15 - Að þokast í rétta átt
23:09 - Til alls vís
27:07 - Rándýr flugeldasýning
34:43 - Annar séns
39:55 - “Alvarleikinn ekki til”
48:39 - Bikarinn
1:00:01 - Þriggja tíma partí

Bíófíklar

Úr hlaðvarpinu

Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Allir þættir

Fleiri þættir af Bíófíklar