Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

Fæðingin var erfið en myndin loksins skilaði sér. Eftir að stórrisarnir hjá Warner Bros. ákváðu svo eftirminnilega að hætta við útgáfu og dreifingu myndarinnar Coyote vs. Acme voru komnar vangaveltur um hvort myndin ætti nokkurn tímann eftir að líta dagsins ljós (enda munum við hvernig fór fyrir aflýstu Batgirl myndinni...). Nokkrum árum síðar kom framleiðslufyrirtækið Ketchup til að bjarga öllum málum og þar af leiðandi gefa myndinni tækifæri til þess að eiga eitthvað líf eða í það minnsta skila sér til áhorfenda. Coyote vs. Acme tekur frumlegan vinkil á dómsmálaþriller í hálfgerðum '90s stíl og sýnir hvað tæki við ef hinn góðkunni Wylie E. Coyote myndi loksins ákveða að lögsækja stórrisana hjá Acme kompaníinu eftir síendurteknar bilanir á græjunum þeirra. Eftir taumlausar feilaðar tilraunir til að klófesta Road Runner-fuglinn er komið að hörðu baráttunni, en það lögsækir enginn stórfyrirtæki eins og Acme án afleiðinga og mögulegra ormagryfja. En ætli þá sléttúlfurinn komist þá nokkuð nær stóra draumnum að ná þessum blessaða fugli eða er stærri hugsjónarbarátta tekin yfir? Bíófíklar fengu brellumeistarann og trausta fastagestinn Fannar Traustason til að veita örlitla innsýn á bak við gerð þessarar myndar. Upp koma líka stærri spurningar, eins og hvort þetta gæti sennilega verið langbesta 'Looney Tunes' myndin, eða í það minnsta sú snjallasta. Fannar vekur einnig upp spurninguna um hvort myndin gæti líklega verið *of* snjöll ef ekki fullorðinsleg fyrir yngri hópana. Og talandi um það, ætli einhver fjórmenninganna í stúdíóinu hafi horft á hana með íslensku tali? Ein leið er til að komast að þessu, og það er að skella sér í sparifötin, setjast í dómsalinn, sperra upp eyrun og hlera drengina kveða upp úrskurðinn um ágæti (eða ofmat...) þessarar leiknu- og teiknuðu bræðingarmyndar. Hlaupum af stað og könnum málið. *Meep meep!* Efnisyfirlit: 00:00 - Aðkoma Fannars að myndinni 07:48 - Langt ferðalag útgáfunnar 19:03 - Looney Tunes minningar 27:30 - Meira um brelluvinnu 40:03 - Bíófíklar vs. Acme 48:48 - Ný hlið fígúranna 51:06 - Spillar og sprell 01:00:56 - Í samanburði við…

Clue (1985)
Sex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan 'whodunit' leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum! Skemmst er frá því að segja að Clue er stálhress blanda af ruglaðri spennu, háði og '80s húmor, en eins og nafnið eða lýsingin gefur til kynna er myndin byggð á borðspilinu stórfræga. Upphaflega gefið út undir nafninu 'Cluedo'. En vissir þú að nafnið Cluedo væri samblanda af Clue+Ludo? og að það hafi alltaf verið upprunalegt nafn spilsins en breytt fyrir amerískan markað? Og eigum við að ræða hvað frammistaðan og hlaupagangurinn hjá Tim Curry* í þessari mynd er mikil frussandi snilld?! Íris, Tommi og Auður Svavars eru sest við matarborðið til að finna út hvernig í ósköpunum þessi mynd fúnkerar svona vel og hvað dræma aðsókn hennar á sínum tíma hefur rænt frá okkur heilu flóruna sem við hefðum getað fengið af flippuðum borðspilsförsum. En... Upp með vopnin og í gang með fókusinn. Nú þarf að leysa eina galna ráðgátu... *Og hvíl í friði, elsku Tim! Bíófíklar eru þér ómælanlega þakklátir fyrir allar yfirdrifnu minningarnar og ekki síst hláturinn. Efnisyfirlit: 00:00 - ‘Gistipartímynd’ 07:53 - Ólíku endarnir 12:45 - Karaktersúpusnilld 21:41 - Borðspilsmyndir 31:28 - Í andstæðulitum 36:36 - Íslenskt Clue 48:07 - Samantekt

Primetime (2026)
Það er ekkert lítið sem Robert Pattinson hefur verið að safna að sér þvílíkum leiksigrum þetta árið. Fyrst var það The Drama, síðan The Odyssey og má sjálfsagt vænta þess að hann geri eitthvað gúrme við rulluna sína í hinni væntanlegu Dune: Part Three. Þá komum við að Primetime, þar sem Pattinson gjörsamlega hverfur inn í hlutverk sitt sem hinn alræmdi og heimsfrægi Chris Hansen. Mynd þessi er algjörlega gerð án samþykki Hansens og fjallar um áhugavert tímabil í bandarískri sjónvarpssögu þar sem þættirnir To Catch a Predator hófu göngu sína áður en allt framleiðsluferlið varð að hreinræktaðri katastrófu. Bíófíklar buðu Gabríel Jean-Sage De-Fontenay aftur velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem margbrotið umræðuefni er til umfjöllunar. Drengirnir við míkrafónanna stúdera stílbrögð, narratífu og almennan árangur þessarar bíómyndar auk þess að kafa aðeins út í ‘TCAP’ bóluna, áhrif hennar og eftirleiki. Hlustandi er hvattur til að fá sér sæti og láta vel (en ekki of vel…) um sig fara, því nú hefst óþægilega samtalið. Efnisyfirlit: 00:00 - Skandalar í brennidepli 07:17 - To Catch a Predator 13:23 - Peningar, frægð og status 20:03 - Lance Oppenheim er… 32:02 - Ósamþykki Hansens 37:13 - Um dekruð börn… 41:15 - Fávitar og spillar 49:51 - (Sjálfs)blekkingarleikir

Resident Evil serían úr smiðju hins umdeilda Paul W.S. Anderson þykir vægast sagt… tja… umdeild. Það er ekki hægt að þverneita fyrir hæfileikum Millu Jovovich til að pósa í slow-mo skotum, og myndirnar vissulega mokuðu inn sérdeilis hlass af seðlum, þó aðdáendur tölvuleikjanna sátu ekki glaðir með úrvinnsluna. Til að viðra með Bíófíklum hinar ýmsu vangaveltur varðandi þessa seríu er Gabríel Jean-Sage De-Fontenay stiginn inn í stúdíóið. Skemmst er frá því að segja að Gabríel er mikill unnandi leikjanna. Merkilegt nokk þá sammælast mennirnir við mækana ekki um hver er besta eða skásta myndin í þessari bíóseríu, en hvað með verstu? Dúndrum okkur í leðrið og leggjumst í sameiningu öll á kaf inn í þennan viðbjóð. Efnisyfirlit: 00:00 - Um tölvuleikina… 06:51 - Resident Evil 17:02 - Apocalypse 24:40 - Extinction 32:14 - Afterlife 42:07 - Retribution 47:12 - The Final Chapter ofl.

Resident Evil (2026)
Resident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við stjórnvölinn með tótal endurræsingu og þeysireið sem margir netverjar segja að gæti verið best heppnaða ‘tölvuleikjamyndin’ til þessa. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt með að kalla hana ‘Fury Road leikjamyndanna.’ Viktor Árni Júlíusson fastagestur er dyggur aðdáandi Resident Evil tölvuleikjanna og gekk hæstánægður út af þessari mynd. Bíófíklar tóku honum og alls konar umræðum um Cregger, hinar bíómyndirnar og vörumerkið sama og fagnandi. Ekki eru allir á sömu skoðun við borðið um óheflaða hæpið eða ótvíræðu gæði þessarar Resident Evil myndar, en það er heldur betur nóg til að róta í hvað varðar framsetningu, stíl og endalausu páskaegg myndarinnar. Upp með byssurnar, hunsið hengilásin og tökumst á við þessa bölvuðu blóðugu vitleysu saman. Efnisyfirlit: 00:00 - Páskaegg Creggers 08:45 - Röfl um lúxussali ofl. 19:47 - Samantekt án spilla 26:55 - Spillar hefjast… 33:19 - Bregður og viðbjóður 40:14 - Austin power’ið 52:25 - Meira svona?

The Invite (2026)
Matarboð nokkuð hefst á óvenjulegu nótunum og þróast síðan út í enn óvenjulegri áttir í kómíska dramanu The Invite. Þetta er þriðja myndin sem Olivia Wilde leikstýrir en á skjánum snýr hún bökum saman við Seth Rogen, Penelope Cruz og Edward Norton. Íris Árnadóttir leiðir samnörda sína í þessu umræðuboði þar sem The Invite er krufin sundur saman, þar af leiðandi með alls konar spillum. Upp með glösin, niður með buxurnar og leggjumst öll á gott trúnó um stórskemmtilega mynd. Efnisyfirlit: 00:00 - Boð og boð 13:35 - Þras eða ró 24:02 - Ræða Nortons 32:02 - Að njóta eður ei 44:20 - Endirinn…

Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur? Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en annað. Íris Árnadóttir samdi megnið af spurningunum, en þá er bara að hlera herlegheitin, og í senn spyrja sig hvernig í ósköpunum fimm manns eru í þættinum þegar míkrafónarnir eru bara fjórir… Efnisyfirlit: 00:00 - ‘Öðruvísi teik’ 08:12 - Óþægilegur bangsi 12:04 - Kokkurinn eða mannætan? 15:09 - Flokkaskipti 24:42 - Erlent rímeik 28:40 - Þrenna og söngleikir 41:06 - Frændsemisbarn… 49:01 - “Ha…??!’ mynd 59:14 - Horror-klisjur 01:05:05 - Rom-com klisjur

Þetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær kynnast Seymour, sem er utangarðs og elskar að safna gömlum 78 snúninga hljómplötum, þá breytist líf Enid til frambúðar. Atli Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður er mættur í stúdóið til Bíófíkla með samnefndu myndasöguna og hefjast þá ýmsar umræður um muninn á kvikmyndinni og smásögunum, vanmetna leiksigurinn hjá Steve Buscemi og jafnframt hinni viðkunnanlegu Thoru Birch - sem lítið hefur til sést á undanförnum árum. Hið sama á reyndar við um leikstjóra myndarinnar líka. Setjið nú sígildu og fágætu vínylplötuna á fóninn, dressið ykkur upp eftir þörfum og skottist með í þetta sérkennilega ferðalag um líf og langanir minnisstæðra sérvitringa. (Beðist er velvirðingar á því hvað nokkrir við míkrafónana eru slapparalegir til hljóms, en þar er vesalings haustpestin að verki...) Efnisyfirlit: 00:00 - Sorgarfregnir úr mannaheimum 13:52 - Draugaveröld 20:56 - List eða ekki list 31:07 - Enid + Seymour 38:28 - Thora Birch 44:55 - Scarlet Johansson 48:52 - ‘Wowsville’... 53:11 - Samantekt

Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu. Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi skortur á heilum kynslóðunum sem þekkja allflest lögin úr þeirri mynd. Þar að auki var þetta bíómyndin sem skaut John Travolta (og Oliviu Newton-John í einhverjum mæli) hraðar upp stjörnuhimininn. Grease 2 er önnur saga; sú mynd hefur verið stuttlega rædd annað slagið í hlaðvarpinu en aldrei til fulls… fyrr en núna! Það er vægt til orða tekið að fullyrða að Grease 2 er óvinsælli myndin af þeim tveimur; fæstir úr upprunalegu myndinni snéru aftur (en persónurnar voru svo sem löngu búnar að útskrifast…) og lögin þótti alls ekki jafn grípandi að mati áhorfenda og gagnrýnenda. Að vísu er erfitt að neita því að Michelle Pfeiffer átti þarna massasvala innkomu og gladdi fáeinan einstaklinginn með sóló-söngnum ‘Cool Rider’, en listinn yfir kosti þessarar mynda ná sjaldnast lengra en það. Þá að sjálfsögðu er einn ónefndur Bíófíkill sem hefur í áraraðir tekið upp mótorhjólahanskann fyrir hinni veraldlega hötuðu Grease 2. Hvers vegna? Það veit enginn, nema jú, hlustandi góður sem kýs að ganga í klíkuna og hlera þetta djúsí spjall um myndirnar tvær. Efnisyfirlit: 00:00 - Minningar af Koppafeiti 17:05 - Kynjapólitíkin 24:45 - Litrík flóra persóna 29:52 - Dans- og bílakeppni 36:58 - ‘Fimm-söngleikja-reglan’ 45:47 - Grease 2… 54:01 - Umdeildari lög 58:00 - Dólgslæti persóna 01:07:22 - Týnda sjónvarpsserían…

Topp 5: John Waters
Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar. Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry Baby, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Má þá líka gjarnan færa þau rök að Waters hafi kynnt heiminum fyrir óviðjafnanlega skemmtikraftinum Divine. Íris Árnadóttir heldur utan um taum þessa innslags og í stúdíóið með henni eru mættir þeir Ormur Guðjónsson og Haukur Heiðar Steingrímsson. Saman velja þau sínar uppáhalds myndir eftir þennan snilldarlega sérvitring - sem er svo sannarlega ekki allra - og skoða þau ýmsu mynstur sem hafa fylgt honum í áratugaraðir. En aðdáendahópar Waters eru dyggir, mjög svo utangarðs í ýmsum samfélögum og e.t.v. prakkaralegir, líkt og heilinn á bak við titlaflóruna. Hér verður allsvakalega gramsað, rökstutt og róterað í alls konar gúrme skít í tengslum við þessa óvenjulegu filmógrafíu frá enn óvenjulegri kvikmyndagerðarmanni. Ríðum á vaðið, pössum upp á kjúklinginn og höfnum öllum samfélagslegum normum. Hláturtaugar verða sennilega kitlaðar. Efnisyfirlit: 00:00 - Testum nú Waters 07:03 - Fyrsta upplifunin 14:49 - Uppáhalds leikari 17:35 - Divine legasían 24:27 - Cameo’in og einkennin 38:47 - Cry Baby 49:42 - Hairspray 58:56 - Polyester 01:15:27 - Serial Mom 01:26:56 - Female Trouble 01:42:23 - Pink Flamingos
