Spurt og spilað: Stóra MCU prófið

· Kvikmyndir

Nú skal kanna þekkingu tveggja ólíkra bíófíkla á sarpinum úr hinu svonefnda Marvel Cinematic Universe. Kveikiþráðurinn að þessum spurningaleik kom þegar Kjartan skoraði á Dag Lárusson, sjálfskipaðan MCU sérfræðing, og þá ákvað Tommi að hlaða í eitt heljarinnar próf, ef svo má kalla það, með dómnefndaraðstoð frá Atla Frey. 
Kjartan og Dagur Lár settu sér í stellingar þar sem heili og hugvit þeirra beggja var grillað með alls konar spurningum um einn vinsælasta kvikmyndaheim síðari ára, enda vægast sagt úr nægu að taka. 
Aðeins einn getur komið út úr þessu sem sigurvegari og þá með betri innistæðu fyrir því að sverja sig í hóp helstu MCU-sérfræðinga landsins. 
Haldið ykkur fast, hér er það Dagur Lár vs. Kjartan...

Efnisyfirlit:
00:00 - TikTok og áskorun
06:02 - Hvor svarar fyrst? - MCU sagan
16:21 - Einn í einu - Staðreyndir
32:41 - Kvikmyndagerð og leikarar
44:52 - MCU þættir
56:03 - Niðurstaða og Doomsday

Bíófíklar

Úr hlaðvarpinu

Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Allir þættir

Fleiri þættir af Bíófíklar