Topp 10: Elín Ósk
Hversu oft hefur þú séð The Mummy frá 1999? Hvað með Titanic? Léstu nokkuð Little Women frá 2019 fram hjá þér fara? Hefurðu kynnt þér leikstjóraútgáfuna af Midsommar? Eða júmbóútgáfuna af Kill Bill?
Þessar kvikmyndir og fleiri eru allar í miklu uppáhaldi hjá topplistagesti Bíófíkla að sinni, en það er Elín Ósk Jóhannsdóttir sem hefur verið áberandi með innslög sín á TikTok síðustu misseri. Elín er svo sannarlega sjónvarps- og bíófíkill og þar af leiðandi meira en velkomin við gestamækinn í Podcaststöðinni. Hún leiðir Kjartan og Tomma í gegnum úttekt sína á titlum sem hafa verið í gríðarlegum metum hjá henni.
Fjölbreytnin er borðliggjandi og við fögnum að sjálfsögðu fjölbreytileikanum. Elín fær orðið, og sviðið.
Efnisyfirlit:
00:00 - Elín Ósk á TikTok
08:49 - Pride and Prejudice
13:30 - Titanic
23:32 - The Dark Knight
30:54 - Tangled
34:06 - Arrival
37:32 - The Mummy
45:32 - Midsommar
53:24 - American Psycho
01:01:38 - Little Women
01:10:09 - Kill Bill (vol. 1...)






