Toy Story (1995-2026)

· Kvikmyndir

Margir hafa mögulega gleymt því en heimurinn fór nánast á hliðina þegar fyrsta Leikfangasaga Pixar-stúdíósins var gefin út. Þetta var fyrsta tölvugerða teiknimyndin í fullri lengd þar sem sköpunarteymið lagði það að markmiði að gera hálfgerða 'anti-Disney mynd'.
Sem betur fer stóðu gæðin undir vinsældunum, því seinna meir urðu Toy Story myndirnar enn vinsælli og að margra mati betri eftir því sem á leið.
Til að ræða hæðir og umdeildu lægðir Toy Story seríunnar fengu Kjartan og Tommi hina massakláru og ávallt skemmtilegu Siggu Clausen til að róta aðeins með þeim í dótakassanum. Allar fimm myndir syrpunnar eru ræddar (að ógleymdum stuttmyndunum) og jafnframt ólíkar tengingar hvers og eins í stúdíóinu við ævintýri Vidda, Bósa, Dísu og félaga. 
Þetta þýðir bara eitt; það er kominn leiktími!

Efnisyfirlit
00:00 - ”Marvel Rouge"
09:12 - Toy Story
38:10 - Toy Story 2
51:28 - Toy Story 3
01:07:53 - Toy Story 4
01:15:43 - Toy Story Toons
01:22:16 - Toy Story 5

Bíófíklar

Úr hlaðvarpinu

Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Allir þættir

Fleiri þættir af Bíófíklar