Supergirl (2026)
Nýi DC heimurinn heldur áfram göngu sína og stækkar hratt með hverju innslagi. Í fyrrasumar fengu áhorfendur að kynnast nýjum Superman, í glæsilega huggulegri túlkun Davids Corenswet. Nú er komið að frænku hans, ofurstúlkunni Köru Zor-El. Milly Alcock skaut reyndar aðeins upp kollinum í kynningarmynd frænda síns en áhorfendur fá loksins að kynnast henni betur í gerólíkri sóló-mynd í leikstjórn Gregs Gillespie (Lars and the Real Girl, I, Tonya, Cruella ofl.). Hingað til hafa flestir þekkt til Alcocks úr House of the Dragon en Bíófíklar taka innkomu og DC-ævintýrum hennar fagnandi. Annað en bíógestir, því miður…
Aðsóknartölur myndarinnar um Supergirl hafa ekki verið upp á marga fiska og viðbrögð gagnrýnenda misjöfn en sagan hennar er alls ekki öll og tölurnar stoppa ekki Kjartan og Tomma frá því að rýna í myndina og skoða hvernig hún stendur sem sjálfstæð saga og hvernig persónuleiki hetjunnar ganga upp.
Við gestamækinn að sinni er afburðanördið- og enn fremur myndasöguséníið Svanhvít Ada Sif Björnsdóttir til að taka þátt í umfangi umræðunnar, ásamt tilheyrandi og kannski óhjákvæmilegum útúrdúrum í tengslum við SnyderBros, fjölbreytni, menningarstríð, CW þættina um Supergirl og Star Trek (?). Þetta skýrist auðvitað betur í hlustunni.
Flugið verður fróðlegt, furðuleg og margbrotið, eins og umdeilanlega mætti eflaust segja um sjálfa Supergirl.
Efnisyfirlit:
00:00 - Trekkara-trivia
07:15 - DC eða Marvel
23:49 - Woman of Tomorrow
35:45 - Supergirl og spoilerar
46:46 - Heildartónn
59:13 - Glötuðu "sérfræðingar" netsins






