The End of Oak Street (2026)
Ef það eru risaeðlur í myndinni, þá eru góðar líkur að myndlistarmaðurinn og Jurassic-sérfræðingurinn Arnar Steinn Pálsson vilji vera með í umræðunum. Þannig varð akkúrat tilurð þessarar þáttar, er hann stakk upp á því við Bíófíkla að fjalla um kvikmyndina þar sem þeir J.J. Abrams og David Robert Mitchell (It Follows ofl.) snúa saman bökum með vonir um að kæta og hrella bíógesti um allan heim.
The End of Oak Street er ráðgáta, skrímslamynd og sci-fi spennutryllir sem gerist á níunda áratugnum. Eftir að dularfullt yfirnáttúruafl flytur Eikargötu - og allt hverfið eins og það leggur sig - á óþekktan stað (og mögulega í óþekktan tíma…), uppgötvar fjölskylda fljótlega að tilvera hennar veltur á því að þau standi saman á meðan þau reyna að átta sig á því sem gerðist.
Arnar og Bíófíklar leggjast nú saman í ferðalag um að meta og kanna ágæti þessa ferðalags sem þau Anne Hathaway, Ewan McGregor og fleiri prýða svo hressilega. Er þetta drekkhlaðið stuð, innantómt fjör eða hreinlega allt bara innantómt gól? Lifir hundurinn þetta af? Hvað með kettina?
Og hvað segir risaeðluséníið í stúdíóinu?
Flytjum okkur nú á slóðir út fyrir endimörkin þar sem tími og rúm er komið í algjört rugl, og metum afþreyingargildi þessa rugls. Athugið að búast má við öskrum. Og spillum.
Efnisyfirlit:
00:00 - Hemmi Gunn og 4DX
14:41 - Hvert fór JJ Abrams?
20:30 - Eikarstæti án spilla
30:26 - Risaeðlupælingar
38:17 - Yfir í spoilera…
50:13 - Klappað í salnum






