#113 Hin djöfullega skelfing
Á fyrrihluta níunda áratugar reið einkennilegt fár yfir Bandaríkin. Foreldrar, forráðamenn og kennarar unglinga þóttu greina þess augljós merki að myrkrahöfðinginn sjálfur væri að ná tökum á þeim. Það þóttist sjá greinileg merki um fórnarathafnir og aðrar myrka starfshætti sem tengjast illþýði helvítis. Frétta - og spjallþættir voru uppfullir af umræðu um "satanic panic" og svo rammt kvað að þessu að bandaríska alríkislögreglan sá sig knúna til að setja saman teymi til að rannsaka hvort eitthvað væri hæft í þessu. Ýmis fyrirtæki urðu fyrir barðinu á þessu, þóttu ganga erinda Satans þótt þau framleiddu snyrtivörur eða annað saklaust. Hlutverkaspilið Dungeons & Dragons var fordæmt af þeim sem sáu Satan alls staðar. Þetta virkar hlálegt en á þessu er grafalvarleg hlið því þetta kostaði bandarískt samfélag margar milljónir dollara og saklaust fólk var svipt frelsi sínu og ærunni. Þetta var nánast eins og galdraofsóknir 17. aldar. En hefur "satanic panic" horfið með öllu eða aðeins breytt um svip? Í stað Satans er nú kominn hinn óþekkti Q og QAnon.
Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon
Vefverslun Drauganna
Tónlistin úr þáttunum
Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Fleiri þættir af Draugar fortíðar
- #271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland4. febrúar 2026
- #267 Röðull GK7. janúar 2026
- #264 Maður án heila8. október 2025
- #261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin10. september 2025
- #LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn3. september 2025
- #256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar?6. ágúst 2025
