Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.
#271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland
4. febrúar, 2026
Í þessum þætti skoðum við sögu og samband tveggja orrustuflugmanna úr seinni heimsstyrjöld. Þeir voru ólíkir menn en náðu samt einkar vel saman. Þeir voru fyrst og fremst flugmenn. Er verstu manngerðu hamfarir sögunnar dundu yfir Evrópu svöruðu þeir kallinu.
#267 Röðull GK
7. janúar, 2026
Þriðjudaginn 15. jan. 1963 lét togarinn Röðull GK úr höfn frá Reykjavík. Planið var að vera á veiðum í uþb 4 vikur á Mýrargrunni. Um hádegi á fimmtudaginn tilkynntu nokkrir skipverjar um ógleði og máttleysi.
#264 Maður án heila
8. október, 2025
Árið 2007 leitaði franskur maður til læknis. Ástæðan var þrálátur verkur í fæti. Læknirinn sendi manninn í ýmsar rannsóknir. Þar á meðal sneiðmynd af heila. Læknirinn fékk seinna hringingu frá röntgendeildinni þar sem hann var beðinn um að koma strax.
#261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin
10. september, 2025
Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér. Upp úr 1990 fór einn maður að láta að sér kveða í frönsku þjóðlífi og vakti mikla athygli. Hann virtist sérfræðingur um nokkuð sem Frakkar höfðu til þessa gefið lítinn gaum: Raðmorðingjar.
#LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn
3. september, 2025
Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér. Draugarnir lögðu í hann í upphafi árs 2025 og fóru vítt og breitt um landið. Þann 23. janúar var komið að Græna hattinum. Í það skiptið var uppákoman ekki eingöngu skráð í hljóði, heldur einnig í mynd.
#256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar?
6. ágúst, 2025
Í byrjun níunda áratugar varð vart undarlegrar vænisýki sem breyddist frá úthverfum Bandaríkjanna og var skyndilega á allra vörum. Það var hið svokallaða "Satanic Panic" sem sumir telja undanfara QAnon. Hræðslan beindist öll inn á við.
#251 Talídómíð: Hryllingur í töfluformi
2. júlí, 2025
Seint á sjötta áratug kom ný tafla á markað sem kölluð var kraftaverkalyf. Hún hafði róandi áhrif og sló auk þess á ógleði. Sérstaklega voru barnshafandi konur hvattar til að taka töfluna gegn morgunógleði.
#247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti
4. júní, 2025
Josephine Baker er einn áhrifamesti skemmtikraftur sögunnar. Auk þess að bæði hneyksla og hrífa Evrópubúa með sínum söng og dansi tók hún virkan þátt í baráttu gegn alræði og kynþáttaníði.
#244 Maðurinn í rotþrónni
14. maí, 2025
Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið.
#238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart
2. apríl, 2025
Adrian Carton de Wiart var belgísk-breskur herforingi sem varð algjör goðsögn innan breska hersins. Hann var svo ósérhlífinn að það jaðraði við sturlun. Hann særðist mörgum sinnum og oft alvarlega.