#74 Drátthagi dráparinn
Mikið vatn hefur runnið til sjávar hvað varðar réttindi samkynhneigðra og það getur verið erfitt fyrir nútímafólk að skilja hvernig aðstæður þeirra voru áður fyrr. Lög sem bönnuðu samræði fólks af sama kyni voru afnumin á Íslandi 1940 en flest ríki voru langt á eftir okkur í þessum efnum. Langt fram á áttunda áratuginn var samkynhneigð ólögleg í mörgum fylkum Bandaríkjanna. Ein borg varð nokkurs konar Mekka samkynhneigðra og margir fluttust þangað í von um betra líf. Sú borg var San Francisco í Kaliforníu. Þrátt fyrir þetta voru borgaryfirvöld og lögregla óvinveitt samkynhneigðum og þau máttu sæta ofsóknum og ofbeldi. Vanlíðan þeirra breyttist þó í fullkomna skelfingu er í ljós kom að raðmorðingi lék lausum hala í borginni og hans fórnarlömb voru allt samkynhneigðir karlmenn. Hann hafði þann undarlega hátt á að teikna mynd af mönnum og gefa þeim, áður en hann tók líf þeirra.
Það eru Borg Brugghús/Bríó og Omnom sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤
Draugarnir eru einnig á Patreon
Vefverslun Drauganna
Tónlistin úr þáttunum
Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Fleiri þættir af Draugar fortíðar
- #271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland4. febrúar 2026
- #267 Röðull GK7. janúar 2026
- #264 Maður án heila8. október 2025
- #261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin10. september 2025
- #LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn3. september 2025
- #256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar?6. ágúst 2025
