#45 Svarta svalan

· Menning & listir, Menntun, Saga

Umfjöllunarefni þáttarins er maður að nafni Eugene Bullard. Hann var fæddur í suðurríkjum Bandaríkjanna árið 1895. Bullard var svartur á hörund og hann ákvað á barnsaldri að hann yrði að komast burt. Hann hafði heyrt föður sinn segja frá landi í Evrópu þar sem „litað“ fólk væri ekki ofsótt og myrt eins og var allt of algengt á heimaslóðum Bullards. Þangað ákvað Bullard að fara og við tók sérlega viðburðarík ævi. Saga Bullards er saga mótlætis og illsku en einnig af hugrekki og sigrum.

Draugar fortíðar

Úr hlaðvarpinu

Draugar fortíðar

Hljóðkirkjan

Allir þættir

Fleiri þættir af Draugar fortíðar