#42 Fátækt fólk
Flosi fékk nett áfall við að heyra að Baldur les ekkert „nema texta á Netflix“. Því fékk hann þá hugmynd að segja Baldri frá einni af sínum uppáhalds bókum og hví hann telur hana mikilvæga. Bókin lýsir ástandi á bæjum á Norðurlandi upp úr aldamótunum 1900. Sérstaklega er sjónum beint að þeim sem voru föst í fátæktargildru og þurftu að láta börn sín frá sér. Tryggvi Emilsson, höfundur bókarinnar, var „niðursetningur“ en svo voru þeir kallaðir sem hreppsyfirvöld settu á ýmsa bæi og borguðu með. „Sveitarómagi“ er annað orð yfir þetta. Misgóð var þessi vist og kemur það vel fram í bókinni.
Fleiri þættir af Draugar fortíðar
- #271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland4. febrúar 2026
- #267 Röðull GK7. janúar 2026
- #264 Maður án heila8. október 2025
- #261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin10. september 2025
- #LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn3. september 2025
- #256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar?6. ágúst 2025
