Einmitt / Menn eins og við

Einar Bárðarson

SamfélagiðMenning & listirAndleg málefni

Menn eins og við er hlaðvarp fyrir alla sem hafa einhvern tímann haft sterka skoðun á kaffi, grilli, garðslöngu, gallabuxum eða einhverju öðru sem skiptir nákvæmlega engu máli... en virðist samt skipta ótrúlega miklu máli. Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fara yfir lífið á miðjum aldri af húmor, sjálfsháði og forvitni. Hver þáttur er blanda af hversdagslegum vangaveltum, persónulegum sögum og endalausum umræðum um allt það sem enginn bað um – en allir eiga skoðun á. Nýir þættir birtast á 7–10 daga fresti.

Menn eins og við "Haga sér í skólanum"

Hvað má maður eiginlega gera í skólanum, hver ræður jólamatnum og má pabbi hafa skoðun á jólaskreytingunum? Einar og Baldur fara víða í 28. þætti af Menn eins og við og hlæja að sjálfum sér á leiðinni. Gamlar sögur af barnum koma við sögu, leyndarmál um tölvuleik fær óvæntan áheyrendahóp og einföld spurning um jólahefðir verður snögglega flókin. Svo þarf að velja jólagjafir og koma stærðarinnar jólatré fyrir í stofunni. Ryksuguróbótinn úr síðasta þætti á líka meira inni. Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér 👉 https://bit.ly/3AuejEW Helstu samstarfsaðilar þáttarins www.gefur.is www.bpro.is www.kolski.is www.bkhonnun.is

Menn eins og við #27 Afmælisgjöfin

Konan á afmæli og í pakkanum er ryksuga. Einar og Baldur ræða viðtökurnar, velta fyrir sér hvort slátturóbótinn sé kominn ofar í goggunarröðina en hundurinn og rifja upp hvernig pabba með reynslu af tískusýningum gekk að flétta hár fyrir danskeppni. Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.  Helstu samstarfsaðilar þáttarins www.gefur.is www.bpro.is www.kolski.is www.bkhonnun.is

122 EINMITT: Jón Jónsson "Eitt grínmyndband fyrir sumarið"

Einar Bárðarson opnar seríu 5 af Einmitt með einlægu og fallegu samtali við Jón Jónsson, sem fagnar 41 árs afmæli sínu á upptökudegi. Þeir ræða tónlistina, fjölskyldulífið, vináttuna og IceGuys-ævintýrið — kvikmyndina sem var frumsýnd kvöldið áður og jólatónleikana í desember sem marka lok þessarar vegferðar.   Aðalbakhjarlar Einmitt eru:  hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is   Bpro.is Sterero.is   Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - Morgunmatur meistarans     egc.is - Hamraborg   mammaveitbest.is   fylgifiskar.is Nýbílavegi   kjotburid.is Austurvegi Selfossi   pureshilajit.is

Menn eins og við #26 "Stóri kombakk þátturinn"

Stóra kombakkið! Einar og Baldur snúa aftur með sögur af Valencia, þvottavélaveseni og lífinu eftir hárígræðslu. Jólastress, raunveruleikaþættir og eilíf barátta við slátturóbótann koma líka við sögu. Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.  Helstu samstarfsaðilar þáttarins  www.gefur.is www.bpro.is www.kolski.is www.bkhonnun.is

MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?"

Það var bókstaflega brotist inn heima hjá Baldri í miðri upptöku þáttarins. Þegar búið var að greiða úr því gátu strákarnir snúið sér að alvarlegri málum – eins og þeirri hneisu að hvorugur þeirra komst á lista Mörtu á Smartlandi yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Róbótinn hans Baldurs er loksins kominn í lag, Einar fór í fjöruferð með einum besta kokki landsins og fékk persónulega stílráðgjöf í Mango. Allt þetta og eitthvað meira sem skiptir nákvæmlega engu máli – nema auðvitað mönnum eins og okkur.  Aðalbakhjarlar Einmitt eru:  hertzlangtimaleiga.is intuens.is gefur.is kolski.is Bpro.is

MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?

Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight? Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið. Um leið reyna þeir að komast til botns í einni stærstu ráðgátu þáttarins: Af hverju í ósköpunum horfir Baldur viljandi á Married at First Sight? Eins og venjulega fara þeir félagar á kostum í umræðum um allt það sem skiptir miðaldra menn gríðarlega miklu máli – en mögulega engan annan. Aðalbakhjarlar Menn eins og við eru:  hertzlangtimaleiga.is kolski.is gefur.is  Bpro.is

MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"

Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem sagt flest það sem skiptir þig nákvæmlega engu máli.

MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal

MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall. Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu sögurnar. Smá ferðalag, smá fortíð og fullt af algjörlega áríðandi en gagnslausu spjalli. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is

MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?"

MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?" Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega ekkert um sólmyrkvann, enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu, hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "Er þetta bara fast á?"  Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is „Er þetta fast?"

Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn"

Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og fékk óvænta gistingu. Baldur hringir í gerfigreindina og fær hana til að skipuleggja fyrir sig sólóferð til Danmerkur, Einar útskýrir af hverju Jón Gnarr er í raun og veru svona flughræddur.  Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is   http://bpro.is

Þér gæti líka líkað...