Samstöðin

Samstöðin

FréttirMenning & listir

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 2. þáttur: Ósköpin

Sunnudagurinn 22. nóvember Hvernig í ósköpunum enduðum við hér? - 2. þáttur: Ósköpin Nýrri heimsstyrjöld á Kóreuskaga er afstýrt en í staðinn færist kalda stríðið yfir á aðrar víglínur. Og ein þeirra liggur þvert í gegnum Reykjavík. Haukur Ingvarsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun, er gestur Vals Gunnarssonar að þessu sinni.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Ómar Stefáns II

Laugardagur 21. nóvember Helgi-spjall: Ómar Stefáns II

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 47

Föstudagur 20. nóvember Vikuskammtur: Vika 47 Þau koma að Rauða borðinu, Salma Björk Önnudóttir, formaður Ungliðahreyfingar Miðflokksins, Anna Þóra Björnsdóttir aka Sjáðanna, kaupkona og uppistandari, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona, Þrándur Þórarinsson málari og Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af kossum, flokkaflakki, leiðtogafundum, deilum og lokun rafmagns.

Rauða borðið 19. nóv - Evrópa, þrír pólar, lögfræði, trans, háskólar, bíó, Balí og ópera

Fimmtudagur 19. nóvember Evrópa, þrír pólar, lögfræði, trans, háskólar, bíó, Balí og ópera Eiríkur Bergmann prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif af kosningaósigur Trump og MAGA-hreyfingarinnar á stjórnmál á Evrópu, ekki síst uppgang ysta hægrisins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um fund þeirra Trumo, Xi og Putín. Voru þeir að skipta með sér heiminum? Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Kossar opinberra starfsmanna,náttúrugjald, dánaraðstoð og fleira ber á góma. Elías Rúni bjó til teiknimyndasögu um kynskiptiaðgerð sína og það marga sem henni tengist. Hann segir Gunnari Smára söguna. Það var allt vitlaust á Bifröst fyrir skömmu en nú er komið dúnalogn og háskólinn virðist á flugi. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor útskýrir fyrir Gunnari Smára hvað góður háskóli er. Heimsþekktur leikari og helstu stórstjörnur Íslands leika í kvikmyndinni Hafið er svart, sem Baldvin Z og Matthías Tryggvi Haraldsson hafa unnið að um árabil. Í viðtali við Ásdísi Olsen segja þeir félagar frá þessu ástríðuverkefni sínu. Við lítum við á grænum, heitum og sólríkum slóðum, nánar tiltekið á Bali þar sem miðaldra ævintýragjarnir Íslendingar eru í ævintýraferð.. Róbert Marshall leiðir hópinn ásamt eiginkonu sinni, Brynhildi Ólafsdóttur. Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússéní og Gunnar Björn Jónsson söngvari ræða stofnun óperunnar og fyrstu uppfærsluna fram undan í samtali við Björn Þorláks. Um meiriháttar menningarleg straumhvörf er að ræða að þeirra sögn.

Rauða borðið 18. nóv - Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs

Miðvikudagur 18. nóvember Öldrunarþjónusta, gervigreind, geðlæknir, trans, tónlist og Geir Ólafs Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, ræðir við Ásdísi Olsen um nýja hugsun í öldrunarþjónustu þar sem kærleikurinn er kjarninn og lífsgæði fólks leiðarljósið. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og Hanna Kristín Skaftadóttir dósent og fagstjóri forystu og gervigreindar á Háskólanum á Bifröst ræða við Gunnar Smára um gervigreind, einkum hvaða áhrif hún hefur á stéttaskiptingu. Ólafur Ævarsson geðlæknir ræðir starf geðlæknisins, greiningar, meðferðir, horfur. Ólafur stendur á persónulegum tímamótum, hann lauk störfum fyrir nokkrum dögum. Björn Þorláks ræðir við hann. Reyn Alpha Magnúsdóttir, forseti Trans Íslands, er gestur Örnu Magneu Danks í nýjum lið við Rauða borðið um málefni hinsegin fólks. Atli Ingólfsson tónskáld, Hanna Dóra Sturludóttir prófessor og söngkona, Eyþór Ingi Jónsson organisti kórstjóri og Bergljót Kristjánsdóttir íslenskufræðingur segja Gunnari Smára frá tónleikum á sunnudaginn, stöðu nýrrar tónlistar, hrekksemi og fleira. Geir Ólafs söngvari heimsækir Gunnar Smára og fræðir hann um tónlist og söng.

Græna borðið 29. þáttur - Aktívismi unga fólksins

Græna borðið 18. nóv. - Aktívismi unga fólksins Árum saman hafa ungir aktívistar látið heyra í sér, en hefur verið hlustað á þau? Við Græna borðið ræðum við allt frá loftslagsverkföllum til vindorkuvera á hálendinu - og framlag barna og ungmenna til að auka metnað stjórnmálafólks til að hugsa ekki bara í kjörtímabilum heldur áratugum. Ragnhildur Katla Jónsdóttir og Andrés Ingi Jónsson stýra Græna borðinu sem að þessu sinni er umkringt ungum umhverfisaktívistum. Gestir: Ida Karólína Harris, loftslagsaktívisti og háskólanemi Stefán Örn Ingvarsson Olsen, forseti Roða - félags ungra sósíalista Jóhanna Malen Skúladóttir, varaforseti Ungra umhverfissinna

Rauða borðið 17. nóv - Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist

Þriðjudagur 17. nóvember Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist Fasteignamarkaðurinn er helfrosinn, bankar eru farnir að kaupa óseldar íbúðir af verktökum og merki um örþrifaráð í bransanum. Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir við Björn Þorláks. Rósa Líf Darradóttir læknir og formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi ræðir blóðmerarald í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrannar Björn Arnarson um ADHD. Valgerður Halldórsdóttir ræðir við Ásdísi Olsen um stjúptengsl. Torfi Túliníus og Guðvarður Már Gunnlaugsson fræðimenn ræða við Björn Þorláks vegna málþings um Grettis sögu. Furðu margt í sögunni kallast á við samtímann. Páll Guðmundsson, kenndur við Húsafell, og Hilmar Örn kórstjórnandi ræða sérstakan tónlistarviðburð á morgun þar sem leikið verður á framandi hljóðfæri. Björn Þorláks ræðir við þá félaga.

Rauða borðið 16. nóv - Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám

Mánudagur 16. nóvember Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins er gestur Sigurjóns. Þau ræða um stjórnmál dagsins. Um Framsóknarflokkinn og eins gagnrýni hans á núverandi ríkisstjórn. Formaður Bændasamtakanna, Trausti Hjálmarsson, hefur verið gagnrýndur harðlega síðustu daga vegna ummæla hans og afstöðu til Stjörnugríss. Hafa margir sakað hann um að verja dýraníð. Björn Þorláks yfirheyrir formanninn. Skiptar skoðanir eru um dánaraðstoð hér á landi en mikill meirihluti landsmanna vill heimila hana að sögn Ingrid Kuhlman sem berst fyrir lögleiðingu. Um viðkvæmt mál er að ræða sem á sér margar hliðar. Björn Þorláks ræðir við Ingrid. Hagfræðingarnir Erna Björg Sverrisdóttir hjá Arion og Una Jónsdóttir hjá Landsbanka ræða við Gunnar Smára um efnahagshorfur, vexti, verðbólgu og stöðu atvinnulífsins. Leifur Reynisson sagnfræðingur hefur skrifað bók um hernámsárin byggða á heimildum en ekki síður munnlegum frásögnum fólks sem þá voru börn. Gunnar Smári ræðir við Leif.

Manngildi - 4. þáttur: Þroskahjálp í 50 ár - Hvað hefur áunnist og hvað þarf að breytast?

Mánudagur 16. nóvember Manngildi - 4. þáttur: Þroskahjálp í 50 ár - Hvað hefur áunnist og hvað þarf að breytast? Gestur Manngildis að þessu sinni er Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Í tilefni af 50 ára afmæli Þroskahjálpar ræðum við sögu samtakanna, réttindabaráttu fatlaðs fólks og stöðuna í íslensku samfélagi í dag. Við kynnumst einnig manninum á bak við formanninn, reynslu hans sem föður og því sem hefur drifið hann áfram í baráttunni fyrir jafnrétti og mannréttindum. Manngildi – Samtal sem breytir samfélagi.

Synir Egils 15. nóv - Gervigreind og almenn heimska, biðlistar, efnahagskrísa og sveiflur í pólitík

Sunnudagurinn 15. nóvember Synir Egils: Gervigreind og almenn heimska, biðlistar, efnahagskrísa og sveiflur í pólitíkinni Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma þau Ingibjörg Isaksen þingkona Framsóknar, Gísli Freyr Valdórsson hlaðvarpari og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða helstu fréttir og stöðu mála í samfélaginu okkar og heiminum. Síðan kemur Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og ræðir við okkur um biðlista í heilbrigðiskerfinu, áhrif á fólk, kerfið og samfélagið og hvað gæti verið til bóta. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Þér gæti líka líkað...