117. Ívar Guðmunds "Ég gef mig allan í þetta"

· Samfélagið, Menning & listir, Andleg málefni

Ívar Guðmundson hefur starfað í útvarpi í hátt í fjóra áratugi, eða frá því um 1988, og á þeim tíma hefur íslenskt útvarpsumhverfi breyst gríðarlega. Hann hefur hins vegar staðið vaktina í gegnum allar þessar breytingar, hjá mismunandi eigendum, á mismunandi tímum í rekstri og fjölmiðlaumhverfi sem hefur oft verið bæði stormasamt og krefjandi. Ívar er ekki aðeins þekktur útvarpsmaður heldur einnig mikill áhugamaður um líkamsrækt og keppnismaður af lífi og sál, og þá hefur hann verið einn ötulasti stuðningsmaður íslenskrar tónlistar í útvarpi um áratugaskeið, kynnt nýtt efni, stutt íslenska tónlistarmenn og haft raunveruleg áhrif á það sem þjóðin hefur hlustað á. Í þættinum ætlum við að fara yfir ferilinn, morgnana í útvarpinu, líkamsræktina og lífið, ræða allar eigendurnar sem hafa átt félagið sem á Bylgjuna, væntanleg kaup á stöðinni og hvernig útvarpsumhverfið hefur breyst frá því hann byrjaði í útvarpi seint á níunda áratugnum.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
scavolini.is   
Bpro.is
Sterero.is
Samstarfsaðilar Einmitt eru:
biobu.is -
egc.is - Hamraborg - 
mammaveitbest.is - 
fylgifiskar.is Nýbílavegi
kjotburid.is Austurvegi Selfossi   
pureshilajit.is

Einmitt / Menn eins og við

Úr hlaðvarpinu

Einmitt / Menn eins og við

Einar Bárðarson

Allir þættir

Fleiri þættir af Einmitt / Menn eins og við