Einmitt Special #8 Menn Eins & við eru ennþá að vakna daginn eftir með tatto!

· Samfélagið, Menning & listir, Andleg málefni

Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við ætluðu Baldur og Einar að vera ábyrgir og málefnalegir – ræða vetrafrí og páskafrí út frá skyldum venjulegra pabba.
En það plan entist stutt því helgin hafði verið of ævintýraleg til að fara ekki yfir það fyrst en Baldur endaði á 101 Hótel, pantaði sér kampavínsflöskur á 9.800 krónur og flæktist þaðan inn í kvöld sem innihélt lækni með VIP-kort á leyniklúbb í Reykjavík. Morguninn eftir vaknaði hann með tvö ný tattoo og sennilega aðeins fleiri spurningar en þegar kvöldið hófst.
Einar fór í allt aðra átt – bókstaflega – og endaði í Úlfarsárdal þar sem hann horfði á menn lemja hvorn annan fyrir framan um tvö þúsund manns. Stemningin, manngangurinn og dramatíkin eru krufin til mergjar.
Eftir þetta allt ná þeir loksins að snúa sér að upprunalega efninu:
    • Hvað gera venjulegir pabbar í vetrafríi?
    • Hvernig lítur páska-planið út?
    • Og hversu langt er hægt að fara út af sporinu áður en maður kallar þetta bara „innihald"
Þáttur sem byrjaði sem skipulagsfundur en breyttist í ferðasögu, sjálfskoðun og mid lice crisis á sterum
Þetta er alls ekki leiðinlegur þáttur – bara alls ekki sá sem þeir ætluðu að taka upp.

Einmitt / Menn eins og við

Úr hlaðvarpinu

Einmitt / Menn eins og við

Einar Bárðarson

Allir þættir

Fleiri þættir af Einmitt / Menn eins og við