Einmitt Special #7 Menn eins og við með Sir Arnari Gauta

· Samfélagið, Menning & listir, Andleg málefni

Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við fá þeir Baldur og Einar til sín hönnuðinn og lífskúnstnerinn Sir Arnar Gauta í einlægt og skemmtilegt spjall.
Arnar hefur verið nátengdur tísku- og hönnunarheiminum frá því seint á síðustu öld og hefur sett mark sitt á fjölda glæsilegra veitingastaða og hótela með innanhússhönnun sinni. Hann er jafnframt þekktur fyrir ástríðu sína fyrir stíl og má með sanni kalla hann einn helsta sendiherra Ralph Lauren Polo á Íslandi.
Í þættinum fara þeir yfir ferilinn, fagurfræðina og áhrifin – en láta ekki þar við sitja. Arnar gefur hreinskilið álit sitt á:
    • Skinni á gallabuxum – snilld eða synd?
    • Cargo-buxur – tímalaus praktík eða tískuslys?
    • Og hvort Dolce & Gabbana sé raunhæfur kostur fyrir miðaldra menn.
Þetta er léttur, beinskeyttur og afar skemmtilegur þáttur þar sem stíll, sjálfsmynd og smá hégómi mætast í góðu jafnvægi. Alls ekki leiðinlegt hlustunarefni.

Einmitt / Menn eins og við

Úr hlaðvarpinu

Einmitt / Menn eins og við

Einar Bárðarson

Allir þættir

Fleiri þættir af Einmitt / Menn eins og við