59. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir "Sá hvítan mann í fyrsta sinn þegar ég var 4 ára"
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir matreiðslumaður er gestur Einars í þessum þætti. Hún er fædd á Filippseyjum en mamma hennar flutti til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára kom móðir hennar og sótti hana og þær hófu nýtt líf á Íslandi. Það gekk aldrei sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi barnaverndar á Dalvík gekk henni í móður stað að Snædís fór að ná að fóta sig í lífinu.
Í dag er hún þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem er komið til Þýskalands en ólympíuleikarnir í matreiðslu hófust þar á föstudaginn. Landsliðið keppir í tveimur af stærstu greinunum og leikunum lýkur á miðvikudag. Snædís var fyrirliði landsliðsins á heimsmeistaramótinu 2018, hún var fyrirliði á Ólympíuleikunum í Stuttgart 2020 þegar Ísland náði 3. sæti. Nú er Snædís þjálfari og hún ætlar sér stóra hluti með liðið þessa helgi og viku og á með henni er vel þjálfað lið vönu keppnisfólki.
Ferðasagan hennar frá Filippseyjum alla leið á Ólympíuleikana í matreiðslu hér í þessum þætti.
Fleiri þættir af Einmitt / Menn eins og við
- MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?"25. september 2026
- MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?10. september 2026
- MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"1. september 2026
- MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal21. ágúst 2026
- MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?"12. ágúst 2026
- Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn"31. júlí 2026

