32. Birgitta Haukdal "Eurovision er sumardagurinn fyrsti"
Birgitta Haukdal er gestur minn í fyrsta þættinum af fjórum þessa vikuna sem ég tileinka Eurovision með einum eða öðrum hætti. Við ræðum keppnina árið 2003 þegar Birgitta fór út fyrir hönd Íslands með lagið Open Your Heart og náði einum besta árangri okkar í þessari keppni frá upphafi. Við ræðum líka keppnirnar sem hún tók þátt í og vann ekki. Við ræðum Idol Stjörnuleit, gildi Birgittu í bransanum, lífið og tilveruna. Birgitta er ein okkar reyndasta söngkona, ein okkar allra skærasta poppstjarna og deilir reynslu sinni af fallegu örlæti í þessum þætti.
Fleiri þættir af Einmitt / Menn eins og við
- MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?"25. september 2026
- MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?10. september 2026
- MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"1. september 2026
- MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal21. ágúst 2026
- MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?"12. ágúst 2026
- Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn"31. júlí 2026

