S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur
Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera?
Meira en maður myndi halda.
Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu.
Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það sem gerist þegar lífið tekur óvænta beygju. Hvernig hefur sjálfsvirðið áhrif á samböndin okkar? Af hverju er svona erfitt að taka á móti hjálp þegar við þurfum mest á henni að halda? Og hvað gerist í ástarsambandi þegar annar aðilinn neyðist til að hægja á sér, fara í endurhæfingu eða sleppa tökunum á þeirri útgáfu af sér sem hann þekkti áður?
Þessi þáttur er í boði Lyfju, Nordaid sprey vítamínanna, Bati.app og San Pellegrino - TAKK
Fleiri þættir af EKKI AUMINGI
- S1E12 - Hvenær er endurhæfingin búin?!30. júlí 2026
- S1E11 - "Ef ég get hjálpað fólki í gegnum erfiðleika, þá er ég ALL IN" - Ellen Helga21. júlí 2026
- S1E10 - "Fjárhagslega fullorðin" - Björn Berg fjármálaráðgjafi14. júlí 2026
- S1E9 - Taugakerfið mitt er komið með nóg af mér7. júlí 2026
- S1E8 - "Kvenheilsa í forgang" - Thera Studio30. júní 2026
- S1E7 - Hver á að setja þessi mörk? ER ÞAÐ ÉG?23. júní 2026
